Bókatíðindi - 01.12.2014, Page 78
A Gormabók B Harðspjalda bók C Hljóðbók D Innbundin bók E Kilja F Rafbók G Sveigjanleg kápa76
Ævisögur og endurminningar B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 1 4
G
Uggur
Úlfar Þormóðsson
Margreyndur rithöfundur fær óvænta
höfnun sem leiðir til þess að hann
missir fótanna. Lesandinn slæst í för
með Úlfari Þormóðssyni þar sem
hann berst við þetta mótlæti, rifjar
upp bæði ljúfar og sárar minningar,
auk þess sem honum er fylgt eftir í
hringiðu samtímans. Einlæg og ágeng
bók.
157 bls.
Veröld
E F
Útistöður
Margrét Tryggvadóttir
Hvað gerist þegar kona er óvænt
kjörin á þing á umbrotatímum? Upp-
lausnarástand ríkir og reiðasta fólkið
á Íslandi stofnar stjórnmálaflokk og
krefst breytinga. Var þetta kannski
hálfgerður sjálfsmorðsleiðangur?
Margrét Tryggvadóttir sem var á
þingi árin 2009–2013 skrifar um
reynslu sína.
533 bls.
Hansen og synir
E
Villt
Cheryl Strayed
Þýð.: Elísa Jóhannsdóttir
Cheryl, 22ja ára, leggur af stað í 1.600
km gönguferð eftir Kambaslóðinni
við Kyrrahafið þegar henni finnst að
hún hafi misst allt. Hin erfiða ferð
bæði styrkir hana og heilar. Bókin
hefur hlotið fjölda viðurkenninga og
væntanleg er bíómynd byggð á henni.
320 bls.
Salka
E
Winston S. Churchill
Ævisaga
Jón Þ. Þór
Winston Churchill var einn stór-
brotnasti og litríkasti stjórnmála-
maður 20. aldar. Hann lifði langa ævi
og kom með einum eða öðrum hætti
að helstu atburðum veraldarsögunnar
um sína daga.
256 bls.
Sögufélag
D
Sigursveinn
Baráttuglaður brautryðjandi
Árni Björnsson
Sigursveinn D. Kristinsson fædd-
ist árið 1911 í Fljótum í Skagafirði.
Hann var tápmikill, tónelskur og bók-
hneigður krakki, en þrettán ára gam-
all lamaðist hann. Sigursveinn bjó yfir
miklum viljastyrk og tókst að ryðja úr
vegi flestum hindrunum sem á vegi
hans urðu.
400 bls.
Hið íslenska bókmenntafélag
E
Skáldungur
Sjö ár á fræðaslóð
Gísli H. Kolbeins
Hér bregður höfundur upp mynd af
kynnum föður síns af þekktum rit-
höfundi. Sem kennari leiðir hann
skáldið til þroska og saman ferðast
þeir um landið og kynnast þjóðlíf-
inu, sérkennilegu fólki og fjölbreyttu
tungutaki.
136 bls.
Salka
E
Stúlkan frá Púertó Ríkó
Esmeralda Santiago
Þýð.: Herdís Magnea Hübner
Mögnuð og seiðandi þroskasaga höf-
undar sem elst upp í kofa hjá litríkri
fjölskyldu. Skyndilega breytist allt er
hún flyst til New York og þarf að að-
lagast nýrri menningu. Hefur hlotið
einróma lof gagnrýnenda.
292 bls.
Salka
D C
Hljóðbók frá Skynjun
Guðrún Gísladóttir les
Svarthvítir dagar
Jóhanna Kristjónsdóttir
Jóhanna fæddist 1940 og ólst upp í
Þingholtunum og á Melunum. Djúp-
vitur og falleg frásögn um uppvöxt
hennar fyrstu 15 árin, full af hlýju,
húmor og innsæi. Jóhanna, fjölskylda
hennar og fólkið í kringum þau lifna
við á síðum þessara ógleymanlegu
æviminninga.
380 bls. / Hljóðbókarútgáfa óstytt
Sögur útgáfa
þrjár kynslóðir
s jálfs tæðra kvenna
Saga Katrínar Stellu Briem,
móður hennar og ömmu er
áhrifamikil örlagasaga sem hefur
legið í Þagnargildi allt of lengi.
Ævintýri líkust.
T
Ógleymanlegt fólk
T
þú leggur hana ekki frá Þér
www.forlagid.i s | Bókabúð Forlagsin s | F i sk i slóð 39