Heima er bezt - 01.02.2006, Page 9
Hilmar Skagfield með
Hawaiigítarinn.
Lovísa og Sigurður Skagfíeld við bœjarþil í Brautarhoiti
um 1936. Foreldrar hans, Sigurður Jónsson ogJóhanna
Steinsdóttir vinstra megin við hann en unglingsstúlkan
lengst til hœgri er Kristín Svemsdóttir. Pípumaðurinn til
vinstri er óþekktur.
Hawaiikvartettinn: Ólafur
Maríusson lengst til
vinstri, Haukur Mortens,
sem söngþá með þeim,
Eyþór Þorláksson og
Hallur Símonarson.
Hilmar Skagfield sitjandi
með Hawaiigitarinn.
Sigurður Sigurðsson og Lovísa Albertsdóttir sumarið
1930.
mörgum árum áður sungið opinberlega á Sauðárkróki við
undirleik Péturs Sigurðssonar.
Urn ævi og listferil Sigurðar Skagfíeld hefur ekki mikið
verið skráð og hann er að nokkru leyti í gleymsku fallinn. En
hann var mjög vel menntaður söngvari og á tímabili þekktasti
óperusöngvari íslendinga. Talið er að hann hafi sungið inn
á 58 hljómplötur, alls um 118 lög, og naut mikilla vinsælda
á þriðja og íjórða áratug 20. aldar. Fyrst söng Skagfíeld inn
á plötu árið 1924. Hún var tekin upp í Danmörku, aðeins
ein plata. Á henni voru lögin Friður á jörðu eftir Árna
Thorsteinsson og Heimur eftir Kaldalóns. Árið 1925 komu
fjórar plötur, líka teknar upp í Danmörku. Árið 1930 var fyrst
hljóðritað hér heima á Islandi. Þá komu hingað
upptökumenn vegna Alþingishátíðarinnar
og Sigurður söng þá inn á tvær plötur
að beiðni þeirra í Fálkanum. Hann
varð fyrstur til að syngja inn á plötur
lög Péturs Sigurðssonar félaga síns
úr Bændakómum: Harpan mín
(þ.e. Ætti ég hörpu) árið 1928 og
Vor og Erla árið 1930. Á árunurn
fyrir og eftir 1930 seldi enginn
maður eins rnikið af plötum og
Sigurður Skagfield. Þetta gramdist
sumum, sem töldu sig meiri menn
en Sigurður og þess vegna var reynt
að þagga hann niður. En hann lenti í
Lovísa Albertsdóttir. andstöðu við volduga menn, sumpart
Heima er bezt 57