Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Blaðsíða 12

Heima er bezt - 01.02.2006, Blaðsíða 12
Hefst þá aftur frásögn Eddu: Ég var látin fara suður í Ingimarsskólann eins og Hilmar bróðir þegar ég var 15 ára en tók bara 2. og 3. bekk, því ég hafði verið í Varmahlíðarskólanum veturinn 1944-1945, fyrri veturinn sem sá skóli var starfræktur. Ingimarsskólinn hét raunar Austurbæjarskóii en Ingimar Ingimarsson prestur var skólastjóri og skólinn alltaf kallaður Ingimarsskólinn. Þama vom mjög góðir kennarar og virðingin svo mikil að við þéruðum þá alla og allir vom fínt klæddir og stóðu upp sem einn maður þegar kennarinn kom inn í bekkinn. Þar var mikill agi og maður þorði ekki annað en læra. Sautján ára kláraði ég skólann og fór alltaf norður á vorin, var heima á sumrin við heyskapinn og fór svo suður eftir göngumar hvert haust hin næstu. Eins og áður hefur fram komið bjuggu foreldar mínir ekki saman og pabbi kom aldrei nema sem gestur. Mamma treysti sér ekki til að fara utan með honum vegna heilsuleysis síns og þetta var auðvitað ekkert venjulegt hjónaband. Sumir töldu að mamma hefði neitað að gefa pabba eftir skilnað en það er ekki rétt. Hann fór aldrei fram á það íyrr en eftir að hann kynntist Ingu Hagen og eignaðist Sigrid hálfsystur mína. Inga var ópemsöngkona og yndisleg manneskja. Þau lentu bæði í Grinifangelsinu í Noregi og þar átti hún Siggu í fangelsinu 1944. Þá hófust skriftir gegnum Rauða krossinn og þá fyrst bað hann mömmu um skilnað, vegna þess að í Þýskalandi vom það lög að Sigga fengi ekki að bera nafn hans nema þau væm gift. Sonur Sigrid systur heitir Gunnar. Það var hann sem fékk í hermálaráðuneytinu í Berlín plagg frá fangabúðunum í Osterode, sem var listi yfír þá sem átti að fara að skjóta. Á þeim lista var nafn pabba. Gunnar er á fertugsaldri, tónlistarmaður og söngvari og hefur svolítið reynt að afla upplýsinga um pabba í Þýskalandi. Án þess ég þori að fullyrða það, held ég að pabbi hafi byrjað að nota ættamafnið Skagfíeld þegar hann fór til Kanada. Þegar Andrés Jónsson föðurbróðir hans fluttist til Kanada tók hann upp nafnið Skagfeld og pabbi skrifaði sig fyrst Skagfeld en breytti því síðar í Skagfield. Mig minnir að Dóra dóttir Andrésar, sem kom hingað fyrir mörgum árum, hafi sagt mér þetta. Söngur og tónlist Ástæða þess að ég gat farið suður til náms var sú að afí og amma í Brautarholti gáfu pabbajörðina Brautarholt um 1937 eða 1938 þegarhann komheim. Svo varþað árið 1944 að hann fór fram á skilnað við mömmu. Þá sagði Sigurður sýslumaður við mömmu að hún skyldi ekki gefa eftir skilnaðinn nema hún fengi jörðina, því pabbi hafði auðvitað aldrei borgað krónu til uppeldis okkar Hilmars. Þetta gerði hann og það bjargaði því að mamma gat sent mig í skóla. Hún seldi svo Haraldi Stefánssyni bónda í Brautarholti jörðina sama ár, að mig minnir á 25.000 krónur. Ég hafði óskaplegan áhuga á tónlist og mamma spilaði vel á orgel, hafði lært það og hún kenndi mér allar nótur, lokaði mig meira að segja inni í stofu til að æfa mig. Mest söng ég Sigurður Skagfield í óperuhlutverki Faust. Steingrímur Óskarsson á Páfastöðum með einn hesta sinna. úti í móum þegar ég var að ná í hrossin. Mamma söng ekki sjálf og henni var ekkert vel við að ég væri að syngja og afa ennþá síður. Ég sagði þeim að ég ætlaði að læra söng en þau vildu ekki heyra á það minnst. Samt var hún að kenna mér að spila. Kannski var þetta eitthvað út af pabba. Hún gat ekki hugsað sér að ég fetaði í hans spor. Þeim kom illa saman, afa og pabba, því afa fannst það engin vinna vera að syngja og hann væri bara letingi, sem nennti ekki að vinna heiðarlega vinnu. Eftir að skólanum lauk fyrir sunnan fór ég áfram suður næstu haust og fékk oftast vinnu í KRON, stóru versluninni sem var á móti gamla Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg. Það var þá stærsta búðin í bænum. Þar var gott fólk. Ég var svo heppin að ég kynntist engu öðru en góðu fólki. Hilmar bróðir og Kristín fóru að búa í Reykjavík 1946 og ég fór til þeirra, átti alltaf samastað hjá þeim í Þingholtsstræti 28. Ég vann þrjá vetur í KRON en svo einn vetur hjá Rafmagnsveitum ríkisins við efnagreiningu. Það var ægilega gaman. Það var reikningskennarinn minn sem útvegaði mér þessa vinnu og þetta var einhver skemmtilegasta vinna sem ég hef nokkru sinni unnið. Svo tapaði ég henni eins og gengur en gat þá aftur fengið vinnu í KRON. 60 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.