Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Side 31

Heima er bezt - 01.02.2006, Side 31
til sýningar og hér heíur verið greint frá. Hann heldur svo áfram: Við höfum aldrei haldið því fram að eftirmynd okkar af hinni frægu flugvél Whiteheads, nr. 21, hafí gengið fyrir sams konar asetílenhreyfli og hann hannaði og smíðaði. Við notuðum UL-hreyfla og drógum úr afli þeirra og orku til jafns við hreyfla Whiteheads frá 1901. Þetta var gert til að tryggja öryggi flugmanns og komast hjá spjöllum eða eyðileggingu á flugvélinni. Með því að draga úr vélarafli til jafns við það sem Whitehead réð yfír gátum við á fullnægjandi hátt sýnt fram á að hægt hefði verið að fljúga tæki hans og hafa stjóm á því að vissu marki. Það er meira en sagt verður um þá eftirmynd sem sýnd var, þegar fagnað var aldarafmæli flugs í Bandaríkjunum í desember 2003. í framhaldinu bendir Lechner á það, að ekkert líkan af Kitty Hawk Flyer- tvíþekjunni frá 1903 hafi verið nákvæm eftirmynd, enda hafí Wrightbræður ekki skilið eftir sig neinar teikningar af flugvélinni. Það sem á eftir fer hefiir Lechner eftir William J. O’Dwyer, fv. majór í bandaríska flughemum: Tækið [sem sett varupp á Smithsonsafninu á aldarafmælinu] er smíðað eftir „fáeinum leifum" úr flakinu frá 17. desember 1903. Mest af upphaflegu grindinni setti Orville saman í skyndingu við gerð líkansins sem sent var Vísindasafhinu í Lundúnum 1927. Það var svo tekið sundur og geymt í neðanjarðarbyrgi í Bretlandi í síðari heimsstyrjöldinni, og var ranglega skráð sem „frumgerð" þegar Smithsonstofnunin tók við því frá erfingjum Orvilles. Þetta líkan var svo tekið sundur og endurgert með enn frekari ónákvæmni fyrir flutninginn frá Smithsonbyggingunni í hið nýja safn Flug- og geimferðasafnsins í Washington. Og enn var því breytt til undirbúnings fyrir aldarafmælissýninguna. Og Lechner hefur þetta eftir sér- fræðingum á vegum bandarískrar ftug- og geimflugsstofnunar í Kalifomíu, American Institute of Aeronautics and Astronautics), sem smíðuðu eftirmynd af flugvél Wrightbræðra til flugs á aldarafmælinu: Nákvæm eftirmynd hefði verið mjög óstöðug og háskalegt að ftjúga henni. ... Við viljum ekki drepa okkur, og ætlum að breyta flugeiginleikunum (aerodynamics) Percy Pilcher á vængjum „Hauks “ síns 1897. að loknum prófum í vindgöngum. í stað kvíslarinnar (the cradle) verður stýrisstöng, eins og í sumum nútímaflug- vélum, og nýtísku hreyfill mun knýja tvær loftskrúfur. Mér virðist, að störf Weisskopfs að flugmálum hafi ekki, fremur en störf Langleys, breytt neinu um framgang fluglistar. Sýnt hefur verið fram á að flugtæki beggja geta flogið með endurbættum hreyflum. En ef trúa má fréttum í bandarískum blöðum og vitnisburði samtímamanna (sem ýmsir telja að vísu ótrúverðugar heimildir, eins og komið hefur hér fram), hefúr Weisskopf það fram yfír Langley, að honum tókst að fljúga og lenda flugvél sinni. Og þá ber honum vissulega heiðurssess í flugsögunni. Hvenær náðu Wrightbræður tökum á fluginu? Eins og hér hefur komið fram, hefur verið vefengt að Flyer þeirra Wrightbræðra hafi fúllnægt ítrustu kröfum um „flug undir fullri stjórn“ fremur en „hopp“. Lengsti samfelldi flugtíminn var innan við mínútu og ljóst er að tækið var viðkvæmt fyrir sviptivindum. Því hefur líka verið haldið fram að Flyer hafí ekki tekist á loft fyrir eigin vélarafli, heldur hafí flugvélinni verið skotið upp með valslöngu (catapult), eins og svifflugum þeirra fram að þeim tíma. Þessu mótmæla stuðningsmenn bræðranna, og telja að næg vitni séu að sjálfstæðu flugtaki, þótt vissulega hafi Wrightbræður stundum slöngvað vélknúnum flugvélum á loft til að spara tíma og orku. Nútímatæknimenn telja ósennilegt að vélarafl Flyers hafl nægt til flugtaks og flugs nema í einkar hagstæðum vindi, enda eru eftirgerðu flugvélamar, sem flogið var í tilefni aldarafmælisins í Bandaríkjunum, með mun öflugri og fullkomnari hreyflum. Líka hefúr verið fundið að því, að Wrightbræður sýndu ekki opinberlega flugvél á lofti fyrr en 1908, og í bréfí þeirra til stjómar Bandaríkjahers frá árinu 1905, þarsemþeirbjóðahemum afnot af flugvélum sínum, em hvorki teikningar né lýsingar af þeim tólum sem í boði eru. Bræðumir héldu hins vegar áfram tilraunum sínum eftir 1903, og þeir fúll- nægðu án efa öllum kröfum til fúllfleygra og stýranlegra flugvéla síðar. Santos Dumont Sumir vilja miða staðfest upphaf á flugi Wrightbræðra við árið 1908, þegar þeir sýndu fyrst flugvél á flugi opinberlega. Miðað viðþá tímasetningu (og ef staðhæfmgar um flug Weisskopfs em ekki teknar gildar) kemur brasil- ískur maður, Alberto Santos Dumont (1873-1932), sterklega til greina sem fyrsti flugvélasmiður og flugmaður sögunnar. Santos Dumont fæddist í Brasilíu, yngsti sonur auðugs kaffiekrueiganda af frönskum ættum. Faðirinn féll af hesti og slasaðist og fluttist til Evrópu árið 1891 ásamt konu sinni og yngsta syni. Alberto var sendur í háskóla í París, þar sem hann lagði stund á raunvísindi og vélfræði. Hann hóf uppfmningaferil sinn á gerð þriggja hjóla keppnisbifhjóla, en fékk brátt áhuga á flugi og sendi fyrsta loftbelg sinn á loft 1898. Á eftir komu fleiri og stærri loftbelgir og síðan stýranleg loftför. Árið 1901 vann hann til verðlauna með loftskipi, sem hann stýrði kringum Eiffeltuminn, og skipti verðlaunafénu, 100.000 frönkum, á milli verkamanna, sem hjá honum störfúðu, og betlara. Umferðin í París hefur þá ekki verið jafnþung og nú, og Santos Dumont, sem var léttlyndur ungur maður, átti það til að skella sér óvænt í loftskipi niður á götur borgarinnar, kannski bara til að fá sér kaffi á einhverjum veitingastaðnum. Þegar Santos Dumont hafði náð valdi á gasfylltum loftskipum sneri hann sér árið 1906 að gerð flugvéla sem þyngri Heimaerbezt 79

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.