Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Síða 11

Heima er bezt - 01.02.2006, Síða 11
 ■".p- Götupassi Sigurðar Skagfieldfrá 16. apríl 1945, gefinn út fjórum dögum eftir að hann losnaði úr fangabúðunum. Sigurður Skagfield nýkominn úr Osterode fangabúðunum, Leyfi frá herstjórninni, útgefið 30. apríl 1945, um að Sigurður megi vitja bóka sinna ogpersónulegra muna á Friedlanderweg 61. niðurbrotinn maður. sín á Þjóðverjum og að hann skyldi aldrei segja neitt gegn Þriðja ríkinu. Lögreglan í Oldenburg tilkynnti honum að hann yrði undir strangasta eftirliti. Arin 1943-1944 var hann ráðinn fyrsti tenór við þýska óperuhúsið í Ósló ásamt óperusöngkonunni Ninu Hagen, sem hafði þá um tíma verið sambýliskona hans. Þar var Sigurður undir eftirliti því starfsfólk og stjórn leikhússins var flest nasistar. Þá var honum skipað að tala aðeins þýsku við norska embættismenn. Sigurður svaraði því til að í Noregi talaði hann norsku við Norðmenn. Honum var þá tjáð að héldi hann þessu til streitu yrði litið á hann sem óvin ríkisins. Sigurður var skapmikill maður, reiddist mjög og kvaðst hata þýska sósíalismann af öllu hjarta, væri sannfærður um að hinar sameinuðu þjóðirynnu sigur. Forstjóri leikhússins hringdi þá til lögreglunnar sem safnaði gögnum gegn Skagfield, m.a. lagði hún fram vitnisburð dansks kórsöngvara, sem skrifaði undir að Sigurður Skagfteld væri einn af verstu mótstöðumönnum nasista sem hann hefði nokkum tímann þekkt. Þrátt fyrir þetta gekk Sigurður enn laus en nú undir strangasta eftirliti og var nánast í stofufangelsi á heimili sínu. Að hrópa Heil Hitler tíu sinnum á dag I janúar 1944 var Sigurður handtekinn og þau Nína bæði og án nokkurra yftrheyrslna eða réttarhalda stungið í Grinifangelsið. Þar fæddi Nína dóttur þeirra, sem Sigrid heitir. „Mér leið vel þar“, sagði Sigurður, „vegna þess að ég kynntist nokkrum ágætis Norðmönnum og mér líkaði betur að vera í fangabúðunum með þessum Norðmönnum heldur en að syngja í þýska óperuhúsinu.“ í apríl 1944 var hann flultur til Þýskalands til að setjast þar í fangabúðir en vinum hans nokkrum tókst að fá hann lausan. Til eru vottorð frá Vilhjálmi Finsen sendiherra í Stokkhólmi, Jóni Helgasyni prófessor í Kaupmannahöfn og Jakob Benediktssyni frá Fjalli, þá bókaverði í Kaupmannahöfn, sem öll vitna um hans íslenska ætterni og að hann væri aríi. Seinni hluti bréfs Jakobs er þannig í lauslegri þýðingu: ,,Hann er fœddur og alinn upp á bænum Brautarholti á Norður-Islandi nálægt fæðingarstað mínum. Hann er af gömlum íslenskum bœndaættum, bæði í föður- og móðurœtt. luppvexti mínum og við mörg tækifæri eftir að við settumst að í útlandinu, hef ég kynnst Sigurði Sigurðssyni sem ráðvöndum og heiðarlegum manni og hæfileikaríkum listamanni, sem ég hef ávallt fylgst með á framabrautinni af áhuga. “ Sigurði var því sleppt skömmu eftir komuna til Þýskalands en varð að undirgangast eftirfarandi skilyrði: 1: Að hrópa Heil Hitler tíu sinnum á dag. 2. Að segja engum það sem hann hefði heyrt og séð. 3. Ekki skrifa bréf, nema póstkort. 4. Að fara ekki úr Þýskalandi. Þau Nina og Sigurður voru nú ráðin að borgarleikhúsinu í Göttingen leikárið 1944-1945. Svo kom að því í september 1944 að leikhúsum í Þýskalandi var öllum lokað en starfsliði þeirra skipað til vinnu við hergagnaframleiðslu. Því neitaði Sigurður, kvaðst vera íslendingur frá hlutlausu landi og mundi aldrei vinna að framleiðslu skotfæra og sprengna. Hinn 3. febrúar kom Gestapomaður í heimsókn, tilkynnti honum að hann væri óvinur ríkisins, síðan gerð húsrannsókn, vegabréf hans og önnur plögg tekin og hann fluttur í fangelsi. Þar sat hann fyrst í jámum í 24 tíma. Þau járn voru með göddum, sem stungust inn í hömndið og varð hann hálfmáttlaus í höndunum í á annað ár eftir þá meðferð. Síðan var hann settur í fangabúðir. Hinn 12. apríl 1945 var Sigurði svo bjargað úr fangabúðunum Osterode af bandaríska herliðinu. Þá vó hann aðeins 48 kíló, maður sem var 180 sm á hæð. Síðar kom í ljós að Sigurður var kominn á dauðalista, þ.e. var á lista yfir þá menn sem átti að taka af lífi en Þjóðverjum hafði ekki unnist tími til þess áður en Bandaríkjamenn tóku búðimar. Sigurður fluttist til Hamborgar sumarið 1945 og bjó þar síðan næstu þrjú árin. Þar söng hann í óperuhúsum á vegum setuliðsins en 1948 fluttist hann alfarinn heim til íslands. Þar starfaði hann einkum við söngkennslu. Nína Hagen kom einnig upp til Islands með Sigrid dóttur þeirra en var hér ekki lengi. Hún fékk ekkert að gera við sitt hæfi og leiddist hér. Þau skildu því um eða eftir áramótin 1950 og Nina fluttist aftur til Þýskalands. Æviferill Sigurðar varð erfiður síðustu árin á Islandi. Skapið var ofsafengið og hann aflaði sér auðveldlega andstæðinga, gekk áreiðanlega ekki heill til skógar eftir meðferðina hjá nasistum. Þegar hann lést sumarið 1956 var hann eignalaus maður og einstæðingur í Reykjavík. Heima er bezt 59

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.