Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Blaðsíða 16

Heima er bezt - 01.02.2006, Blaðsíða 16
Höfundur og eiginmadur vió pýramídana. Einn dagur í Egyptalandi Við vorum komin á fætur kl. 5 um morguninn og stóðum uppi á þilfari þegar lagt var að landi. Sólin var að koma upp en tunglið skein líka næstum fullt. Flest húsin sem við sáum, voru þessir alheimslegu blokkakassar, en þó sáust nokkur gömul brúnbleik hús niðri við höfnina. Morgunverður var kl. 'A 6 um borð í skipinu og lagt var af stað áleiðis til Kaíró kl. 8 eftir að við höfðum beðið í rútunum í klukkutíma. Ég notaði tímann til að virða fyrir mér umhverfíð. Þama voru karlar með hestakerrur, bíðandi eftir túristum, skítugir og skrýtnir, spýtandi í allar áttir, ýmist að rífast eða glettast. Ungur maður kom með konu sína slæðuklædda og fór í göngu eftir hafnarbakkanum þar sem dátar voru á verði. Seinna kom fjölskylda sömu Við „sigldum “ með túristaskipinu Queen Vergin frá Limasol á Kýpur til Port Said. Ferðin suðuryfir Miðjarðarhafið tók hálfan dag og eina nótt. erinda, karlinn vestrænt klæddur, konan með slæðu og tvær litlar stelpur með kolsvartar fléttur og hvítar slaufur í gráum pilsum og hvítum blússum, líklega Anna María Þórisdóttir skólabúningi. Á leiðinni út úr borginni ókum við gegnum arabahverfi og þar var mjög litríkt og fjöragt mannlíf, karlar margir í kjólum og konur með slæður, verslun í fullum gangi. I fyrstu lá leiðin meðfram Súesskurð- inum og sáum við ofan á nokkur skip sem okkur virtust sigla á þurru landi. Vegurinn milli borganna tveggja er næstum þráðbeinn, malbikaður og tvær akreinar sitt hvoru megin við trjábelti pálma og fleiri trjáa. Kofar og skúrar næstum óslitið meðfram veginum. Það tók mig nokkum tíma að átta mig á að þessar hrörlegu vistarverur voru mannabústaðir. Allstaðar var fólk á ferli við veginn, gangandi, ríðandi á ösnum eða bíðandi eftir bílum. Karlar langflestir í kjólum, konur oft berandi litskrúðugar plastkörfur 64 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.