Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Blaðsíða 17

Heima er bezt - 01.02.2006, Blaðsíða 17
á höfðinu, haldandi á börnum eða leiðandi. Karlar sitjandi eða liggjandi í smáhópum á vegkantinum. Mikil andstæða við fátæklega mannabústaði voru moskurnar ríkmannlega byggðar og mikið skreyttar. Herstöðvar voru út um allt og hermenn hvarvetna að æfingum eða akandi eftir þjóðveginunr sitjandi uppi á vörubílum. Þegar nær dró Kaíró var landið á parti algjör eyðimörk, gróðurlausar sandhæðir. Það fyrsta sem við sáum innan borgarmarkanna rétt við flugvöllinn voru nokkrar geitur á beit í hálfgerðu gróðurleysi og sat svartklæddur geitahirðir í hnipri yfir þeim. Alheimslegu kassablokkirnar voru yfirgnæfandi þegar litið var yfír borgina úr íjarska. Fyrst lá leið okkar í egypska safnið til að skoða muni úr pýramídunum. Þarna var kæfandi hiti og gífurleg mannþröng svo að varla var hægt að greina sundur lýsingar leiðsögumannanna. Litla leiðsögukonan okkar, Hannah, gerði sitt besta til að halda saman hópnum en var nokkuð fljótmælt. Mikið var gullið og gersemamar. Allar gullkisturnar voru alveg yfirþyrmandi. Síðast gengum við framhjá konunglegri múmíu eða a. m. k. gullhulstrinu utan af henni. Þar var mikil þröng og vörður rak á eftir mannkösinni með háværu lófaklappi. Að þessari skoðunarferð lokinni tókum við upp nestispakka sem við fengum í skipinu en okkur hafði verið bannað að neyta nokkurs á veitingastöðum í landi. Næst skoðuðum við framleiðslu papýrusmynda. Myndirnar voru í einu orði sagt yndislegar. Stúlka útskýrði papýrusgerðina. Nú lá leiðin í ilmvatnsgerð. Allir voru smurðir með ýmsum tegundum ilmvatns með hinum rómantískustu nöfnum og varð af þessu nokkur verslun. Þessi austurlensku ilmvatnsglös voru ótrúlega skrautleg og fjölbreytt að lögun og auðvelt að ímynda sér að þau pössuðu vel inn í vistarverur egypskra dama. Nú var komið að takmarki ferðar okkar hjónanna: að sjá sjálfa pýramídana. Þeir eru ótrúlega nálægt nýjasta borgarhlutanum. Mig undraði mest grófleiki og stærð steinblokkanna þegar Kátur ökumaður. Fátœkrahverfi í Kairó. komið var fast að þeim. Mér fannst ég horfa upp stórgrýtta fjallshlíð, þegar ég horfði upp eftir þeim. Þarna var um 30 stiga hiti en dálítill vindur og hæfdega hlýtt í skugga þessara steinrisa. En eitt setti strik í reikninginn. Það voru ótrúlega frekir og ágengir sölumenn, sem vildu bjóða manni á bak hestum eða úlföldum. Ekki hættum við okkur niður í iður pýramídanna og það gerðu fáir enda sagt að þar sé mjög loflaust og mönnum hætti við yfírliði. En við fengum Hönnuh til að taka mynd af okkur hjónunum með pýramída í baksýn, svona til að sanna að við hefðum komið á þennan fræga stað. Stórkostlegt var að sjá útyfir jaðar sjálfrar Saharaeyðimerkurinnar með endalausar gular sandöldur. Þar þeystu um nokkrir menn, ýmist á hestum eða úlföldum og ekki var laust við að nokkur ævintýraþrá gripi um sig. Eftir að hafa komið að hinum fræga Svinxi og orðið fyrir vonbrigðum, þar sem flestar útlínur andlitsins eru að mást út, var farið á “basar” með austurlenskum munum. í hróplegri andstæðu við hina skrautlegu og ríkmannlegu hluti sem þar sáust, var daunillt sýki fyrir dyrum úti, Heima er bezt 65

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.