Heima er bezt - 01.02.2006, Page 24
Snemma á fimmta áratugnum sameinuðust Ferguson
verksmiðjurnar kanadíska Massey-Harris fyrirtækinu, og
framleiðir það fyrirtæki enn traktora. Reyndar hafa allir
framleiðendur traktora tekið upp fyrirkomulag og tækjabúnað
Fergusonsins, t.d. er þriggja arma dráttarbeislið löngu orðið
staðalbúnaður á öllum traktorum. Og Harry Ferguson átti
enn eftir að koma fram með ýmsar snjallar lausnir varðandi
vélbúnað sinn.
Eins og áður segir sameinuðu Massey-Harris og Harry
Ferguson fyrirtæki sín árið 1953, og stofnuðu fyrirtækið
Massey-Harris-Ferguson. Nafni þess var síðar breytt í
heitið Massey-Ferguson. Arið 1958 keypti það F. Perkins
verksmiðjumar í Englandi sem vom leiðandi vélaframleiðendur
á þeim tíma. Það styrkti mjög stöðu MF með framleiðslu
díselvéla. MF-35 traktorinn var fyrst framleiddur árið 1960
og var sá fyrsti hjá þeim framleiðanda, sem fáanlegur var
með díselvél. Fleiri útgáfur fylgdu svo í kjölfarið, sem margar
urðu afar vinsælar.
Sérútgáfa af Ferguson.
Meira en hálf milljón grárra Ferguson traktora var framleidd
á árabilinu 1946-1956, og var framleiðslan á sínum tíma, sú
langmesta af slíkum tækjum í Bretlandi. Ferguson dráttarvélar
em enn í fullri framleiðslu og notkun um allan heim.
Massey Harris.
Massey-Ferguson, MF-275.
Ein nýjasta útgáfan af Massey-F'erguson.
72 Heimaerbezt