Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Page 34

Heima er bezt - 01.02.2006, Page 34
nuggaði magann með vinstri hendi og tautaði milli sopanna: „O, gott er það blessað.“ Og hann hætti ekki, fyrr en hann var búinn úr flöskunni. En þó að Helga þætti vínið gott, keypti hann aldrei flösku. Ef hann eignaðist noklcrar krónur, sem sjaldan bar við, því að peningar voru lítið í umferð fyrir aldamót, gaf hann þær móður sinni og systur, sem hann hafði yndi af að gleðja. Einkum var það Coghill sauðakaupmaður, sem löngum dvaldi á Stóruborg hjá Pétri vini sínum, sem gaf Helga peninga. Coghill var gamansamur og nokkuð stríðinn, en mesta góðmenni. Hann hafði gaman af að stríða Helga. Ef Helga sámaði við hann, var Coghill fljótur að leita sátta með því að gefa honum aura, og komið mun hafa fyrir að gullpeningar flytu með; var þá Helgi fljótur að sættast, vissi að engin alvara fylgdi glensi hans og gamanmálum. Feimni Helga átti sér engin takmörk. Hann mun hafa fundið sárt til vanmáttar síns og líkamslýta. Þó heyrðist hann aldrei kvarta yfir ævikjömm sínum, hvað þá heldur að hann léti uppi að hann öfundaði þá sem hraustir vom. Hann viðurkenndi feimni sína. Einu sinni las ég fyrir hann söguna af feimna stúdentinum, sprenghlægilega gamansögu, þýdda. Hló hann dátt að henni og sagði að sá hefði verið líkur sér með heimóttarskapinn. En þó að Helgi væri feiminn, neytti hann aldrei svo matar, ef faðir minn var heima, að hann staulaðist ekki inn í húsið, þrifí ofan húfuna, rétti honum höndina og sagði: „Guð launi matinn!“ En fljótur var hann að snúa sér við og hraða sér fram úr húsinu. Þetta var honum áreiðanlega erfíð ferð. En þakklátsemin var svo ríkur þáttur í eðli hans, að henni varð allt að lúta. Fyrir aldamótin var lítið flutt inn af komvöm og allt ómalað nema hveiti. Handkvamir vom þá á flestum bæjum. Mala þurfti rúg í brauð, bankabygg í grauta og lummur, sem þóttu hið mesta sælgæti, enda ekki annað brauð nema á stórhátíðum. Flestir voru ófúsir að mala; verkið var erfltt og seinlegt, og þeir sem gegndu útiverkum, voru ófúsir að grípa í kvömina á kvöldum. Mölun þótti naumast kvennaverk, enda höfðu konur öðm að sinna, þar sem mikið var um tóvinnu, eins og almennt tíðkaðist fram að [síðustu] aldamótum. Helgi gerði nú mölunina að ævistarfi um marga áratugi, gekk á milli bæja og nialaði. Sjálfsbjargarhvöt var honum í blóð borin. Ekkert var honum fjær skapi en liggja upp á öðmm. Þetta var sú eina vinna sem hann orkaði, og hana rækti hann með einstakri alúð. Þegar hann hafði lokið mölun á hverjum bæ, var hann rokinn af stað þangað sem eitthvað var til að mala; að slæpast, verklaus, kom ekki til mála. Þau ár sem Ingólfur bróðir hans bjó í Katadal með móður sinni, taldi hann heimili sitt þar. Móður sinni unni hann mjög, og bar mikla virðingu fyrir bróður sínum. Helst dvaldi hann hjá þeim á sumrin og þótti gaman að vinna að heyverkum, en orkaði litlu vegna fötlunar sinnar. En erfítt var Helga að eiga þama heima. Þetta var á leiðarenda en ekki miðsvæðis, þaðan sem sækja mætti til allra átta. Katadalur er langur og þröngur dalur í Vatnsnesfjalli, með bröttum hlíðum báðum megin. Austan við ijallið varÆgissíða, þar sem foreldrar mínir áttu heima. Helgi mun aldrei hafa farið fjallið að vetrinum, því að þá lagði harðfenni í hlíðamar. En á sumrin fór hann það iðulega; fór ætíð snemma af stað. Lengi var hann að staulast upp sneiðinginn, sem skáskar snarbratta hlíðina, og þegar brúninni var náð, var mikill sigur unninn. Svo smáþokaðist hann yfir fjallið, sem var flatt og auðvelt yfirferðar, að Þórsá, sem var venjulega lítil spræna, og austur á brúnina fyrir ofan Ægissíðu. Sæist til hans, vomm við drengirnir sendir á móti honum til þess að auðvelda honum leiðina niður brekkumar. Hjá okkur á Ægissíðu dvaldi hann oft langdvölum. Þaðan lagði hann svo leið sína austur í Þing og Vatnsdal og kom við á Stómborg, þar sem hann fékk hjálp yfír Víðidalsá; hún er nokkuð vatnsmikil og var helsti farartálmi á leið hans. Hjónin á Stóruborg og böm þeirra tóku honum vel, og þar kynntist hann Coghill sauðakaupmanni, eins og áður er sagt; stundaði hann eins og fleiri Bretar laxveiði í ánni með Pétri bónda, sem var hinn mesti veiðimaður. Mjög sneyddi Helgi hjá Víðidalnum, æskusveit sinni. Við hana vom bundnar margar beiskar endurminningar um einstæðingsskap og umkomuleysi. Annars var það eitt af sérkenni um Helga, að yrði hann fyrir áreitni á einhverjum bæ, kom hann þar aldrei meir. Skipti engu, þótt orðin væm húsbænda og hjúaskipti. Virtu margir honum það til sérvisku. En enginn veit hvað með öðrum býr, einn er hann sér of sefa. Helgi var ákaflega langrækinn, gleymdi aldrei mótgerð. Þó hataði hann engan mann. En sál hans var sem opin kvika. Hann sveið undan allri áreitni. Gat líka engu af sér hrundið, og það er kannski skýringin á langrækni hans. Alger fyrirgefning eða hefnd er sálinni nauðsyn, til þess að vera í góðu jafnvægi. Marga átti hann vinabæi í Þingi og Vatnsdal. Bömin fögnuðu honum innilega, hlupu á móti honum og leiddu hann í bæinn, og brátt kvað við: „Góði Helgi! Segðu okkur sögu.“ En það varð að bíða rökkursins og sunnudagsins, nú skyldi tekið til við mölunina að lokinni máltíð eða annarri hressingu. Kvarnirnar stóðu venjulega frammi í eldhúsi eða bæjardyram. í miklum frostum var gólfkuldinn ægilegur. Þó að Helgi kepptist við mölunina, var hann kaldur upp að hnjám. Snemma varð hann brjóstveikur; þykir mér ekki ólíklegt að þar hafí nokkru um valdið gólfkuldinn og mjölrykið, sem hefur sest í lungnapípumar. Helgi sótti mölunina fast, raulaði jafnan rímnalag fyrir munni sér og kvamarhljóðið var undirspilið. Góðhjartaðar húsfreyjur kölluðu oft á hann og gáfu honum kafflsopa og glóðarbakaða flatköku, vel smurða með sauða- eða kúasmjöri. Tók hann því þakksamlega, og var vanaviðkvæði hans: „Eg þigg allt, sem mér er gott gert.“ Enginn var Helgi matmaður, en kaffí drakk hann mikið, ef hann átti þess kost. Vegna starfs síns hafði hann meira saman við konur að sælda en karla. Samúð þeirra yljaði honum. En þó að hann drægist meir að konum en körlum, hafði hann bælt svo niður kynhvatir sínar, að þeirra varð aldrei vart í návist kvenna. Hann taldi sig slíkan vesaling, að sér bæri að halda þeim algerlega í skefjum. Þegar Helgi var í leiðöngrum, bar hann ætíð poka um öxl; 82 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.