Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Qupperneq 41

Heima er bezt - 01.02.2006, Qupperneq 41
Ingibjörg Sigurðardóttir: Framhaldssaga 11. hluti - Víst mátt þú það, en mamma þín hefur viljað lofa okkur nöfnunum að hittast óvænt og var það ekki bara ágætt? - Jú, jú, fyrst ég fékk að hitta þig, svarar Sverrir litli og brosir ánægður ti! nafna síns. Sverrir Karlsson og drengurinn nema nú staðar heima á hlaðinu í Nesi. Sigga og Sigrún sjá ferðamanninn og drenginajafn snemma út um baðstofugluggann, þær brosa hvor til annarrar. - Jæja, Sigrún mín, þá er stóra stundin runnin upp, segir Sigga sigurglöð, þær takast í hendur eins og á ungdómsárunum og leiðast út úr bænum. Komumaður og húsfreyja heilsast fyrst með hressilegu handabandi og hún býður hann hjartanlega velkominn, en því fylgir bros fullt af glettni, sem minnir gestinn þægilega á Siggu æskuáranna. Svo snýr Sverrir Karlsson sér að hinni konunni á hlaðinu og réttir fram báðar hendur en Sigga og drengimir hverfa hljóðlega inn í bæinn. Augu elskendanna mætast, þau fallast í faðma og hjarta slær við hjarta og tjá allt sem segja skal, orð eru óþörf og þögnin er heilög. Armlögin greiðast hægt í sundur. Sigrún gengur lengra fram á hlaðið, þangað sem gæðingar ferðamannsins standa. Hún nemur staðar hjá þeim. Er hún farin að sjá ofsjónir? Eða hvað? Hún þekkir ekki betur en Fákur, gamli reiðskjótinn hennar, standi þarna, söðlaður við hestasteininn. Sverrir fylgist brosmildur með Sigrúnu og honum dylst ekki að undrun hennar er mikil. - Kennir þú hér gamlan vin, Sigrún mín, spyr hann og gengur að hlið hennar. - Já, þetta eru víst engar ofsjónir, svarar hún eilítið óstyrkum rómi. - En hvernig komst hann í þínar hendur Sverrir? - Það var stutt ferli. Pabbi keypti hestinn af Jóni héma í Nesi. Eg falaðist eftir því að eignast hann í þeirri veiku von að okkur auðnaðist einhvern tíma að ná endurfundum. Pabbi gaf mér Fák. Frá þessari stundu er hann þín eign, ástin mín. - Mér fínnst þetta líkast fallegu ævintýri, verður Sigrúnu að orði. Hún leggur hendumar um stinnan, mjúkan háls gæðingsins kæra, hálsinn, sem eitt sinn var vættur heitum tárum hennar eftir þungbærar fréttir á örlagaríku vetrarkvöldi að lokinni kaupstaðaför út að Flúðum með þeim Siggu og Jóni og óvæntum ferðafélaga þeirra á heimleiðinni. Nú vætir hún hann með gleðitárum sem fylla augu hennar. Svo snýr Sigrún sér að gefandanum og þakkar honum á verðugan hátt þessa dýrmætu gjöf. Síðan segir hún rólega: - Sverrir minn, Fákur, gjöfín frá þér er eina eign mín á þessari stundu. Eg kem tii þín allslaus af öðrum veraldarauði. Eg er búin að gefa íjölskyldu vestur í Lóni, sem missti aleiguna í húsbruna fyrir skömmu, hús mitt og allt sem því fylgir. En fjölskyldan hefur dvalið undir mínu þaki eftir að leiguhúsnæði þeirra brann. Eg vildi segja þér frá þessu hér og nú. - Þetta gleður mig sannarlega að heyra, svarar Sverrir léttum rómi, - þannig vildi ég hafa hlutina Sigrún mín, að fá þig og nafna minn til mín og ekkert annað úr fortíðinni að vestan. En ertu búin að ganga löglega frá þessu, spyr hann svo. - Nei, ég ætlaði að biðja þig að gera það fyrir mig. Eg treysti engum betur til þess en þér, svarar Sigrún einlægum rómi. - Og það skal líka veða gengið ffá lögskráðu gjafabréfi þínu strax á morgun, svarar Sverrir og innsiglar loforð sitt Heima er bezt 89

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.