Heima er bezt - 01.09.2006, Page 5
Auðunn Bragi Sveinsson:
Rætt við Cuðmund Guðmundsson
og Önnu Friðriksdóttur
Guðmundur ogAnna asamt vinum frá Mosambik, Alan og
Modesta með dætur sínar, Pandu og Cristeal.
Allt á sér upphaf eða aðdraganda. Viðtalþað, sem hér fer á
eftir, á rætur sínar í kynnum við fjölskylduna á Lynghaga 24.
Fyrir um áratugfór fram í Sjónvarpinu keppni
framhaldsskólanna, undir heitinu: „ Gettu betur Þar tóku
meðal annarra þátt, fyrir Menntaskólann í Reykjavík,
sonur hjónanna á Lynghaga, Sverrir Guðmundsson, og
Arnór Hauksson, dóttursonur minn, sem varð stúdent
1997, en Sverrir 1999. Sverrir mun hafa
sigrað í þrjii ár, ásamt félögum sínum frá
M. R., en Arnór í tvö ár.
Þetta tengdi okkur saman, ásamt því,
að stutt var milli heimila okkar. Þess
skal getið, að Snæbjörn, bróðir
Sverris, var tvö ár sigurvegari
ftir bróður sínum, í hópi
skólafélaga sinna frá
M. R. Sama gerðist hjá
dóttursonum mínum.
Bróðir Arnórs, Agúst,
var tvö ár sigurvegari
í þessari keppni.
Fjölskyldur piltanna
fylgdust með þessu ferli
spenntar, að vonum.
Heima er bezt 429