Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Blaðsíða 32

Heima er bezt - 01.09.2006, Blaðsíða 32
Þá er stakan, sem hér fer á eftir, þokkalega kveðin. Dularmögn frá eldri öldum óspi/lt þögnin dró að sér. Rímuð sögn af römmum völdum rökkurfögnuð veitti mér. Sveinbjöm orti vísur um skáldkonuna skagfirsku, Ólínu Jónasdóttur, sem var systir ágæts hagyrðings, er mig langar til að koma síðar að í þessum þætti, en hann hét Hallgrímur Jónasson. Ólína var hagyrðingur mánaðarins hjá mér fyrir nokkru. Vísur Sveinbjamar um Ólínu: Fyrir norðan fjöllin breið frétti ég af brögum, þar sem bæði heil og heið hugsun réði lögum. Þegar lýður lék sér að Ijóðsins gullinbrotum, æðri heildir úr þeim kvað Olína frá Kotum. Spekilítil spáin mín spyr því fram á veginn, hvort hún lifi listin þín líka hinu megin. Næstu vísu lærði ég strax eftir að Sveinbjörn kvað hana. Þar kemur fyrir lýsingarorð, sem ég hef ekki heyrt fyrr: Siðabótum eyðir ótt; iðar fótum glaður. Biður snót um náð í nótt niðurljótur maður. Önnur vísa eftir Sveinbjöm, og ég lærði nýorta á sínum tíma, er sannarlega með hans handbragði, ef svo má að orði kveða: Dagur bjartur, hægt og hljótt, heim að dyrum gengur. Þó er eins og þessi nótt þyrfti að endast lengur. Morgunn, nefnast vísur þær, sem Sveinbjöm orti sem ungur maður: Er við glaum af sterkum straumi strit í taumi flest. Þessu gaum ég gaf í draumi, greip þar nauman frest. Mína lund ég einn við undi, engu bundinn var. I þann mund hjá sævarsundi saman fundum bar. Nærri sjóar léttu lói landið bjó þér svið, þar sem glóuð grös í mói glöggt þér hlógu við. Utanfrá við eyju bláa allir þrá um skeið. Dægur þá við drauma smáa Dröngum hjá ég beið. Að lokum eru tvær vísur úr rímu eftir Sveinbjöm um Helgu Bárðardóttur: Atti hörpu hún og kunni hennar þræði blítt að slá. Söng hún Ijóð um allt, er unni, ein við foss í djúpri gjá. Þar við Ijóð hún löngum undi, leikur strengja gleði jók. Straumafall á fiúðum dundi, fossinn sjálfur undir tók. Ég hefi kynnt vísur og erindi eftir Sveinbjöm Beinteinsson, skáld og allsherjargoða. Dægurljóð Þá er september kominn, ekki ber á öðru. En þó að þessi mánuður beri haustið í sér, á hann sínar björtu hliðar. Eða minnast ekki margir þessara ljóðlína Stefáns frá Hvítadal: Eg erfrelsaður, feigð; ég hef faðmað og /cysst. Undir septembersól brosti sumarið fyrst. Og fyrst ég er tekinn að minnast á haustið, rifjast upp ljóð, sem ég orti á æskuárum um þessa árstíð, og hefst með þessu erindi. Já, oft er indælt á haustin, þó allt sýnist fölnun háð. Uppskeran er það, sem gleður, - unnin sumarsins dáð. Og landið er Ijómandi fagurt, og leiðindi hverfa á braut. I haustsins hljóðlátu skuggum er hugurinn jjarri þraut. Og áfram með haustið. Muna ekki margir eftir Ijóðinu enska, sem þannig hefst: „Darling, I am growing old“? Á íslensku hefur þetta ljóð birst, og er það þannig, en höfundinn veit ég ekki um, því miður. 456 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.