Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.09.2006, Blaðsíða 13
skrifaði ég honum og sagði honum frá; leið svo langur tími. Þá einn dag - við vorum þá í Þorlákshúsi - og var Þorvaldur Thoroddsen staddur hjá okkur (6. september 1881), þá kemur stúlka frá rektor með öndina í hálsinum og biður mig að koma fljótt, það sé eitthvað komið, sem ég verði að taka við. Eg brá við skjótt - mig grunaði eitthvað - og fór til rektors - þar liggur þá mikroskopið á gólfínu, allt í stykkjum, og ýmislegt þar til heyrandi dót í kring - rektor hafði tekið allt þetta upp úr kassanum og beiddi mig nú að taka þetta sem fljótast burtu. Ég fór náttúrlega heim með þetta, en þótti samt fyrir, þar sem Fiske hafði sent skólanum þetta, en ekki mér prívat, eins og hann alltaf hafði boðizt til, því það er allt annað að nota sína eigin eign eða að hafa hlut að láni, sem verður tekinn, þegar minnst varir. Samt sem áður var ég feginn að geta notað þennan sjónauka, enda lá ég nú ekki á liði mínu að nota hann, ég fann með honum fjölda smákvikinda, bæði í læknum, sjónum og mógröfum, og teiknaði allt jafnóðum. Svo hafði ég fengið góðar bækur um notkun sjónauka, og þær stúderaði ég mikið. En þegar ég hætti við skólann, þá varð ég að skila sjónaukanum, en þá tók ég það til bragðs, að ég skifaði Nachet í París, einum helsta opticus í Frakklandi, og beiddi hann um sjónauka, sem mér væri hentugur. Svo leið langur tími, þangað til ég fékk loks þann sjónauka (30. júní 1882), hann kostaði 149 kr. 65 aura, en burðargjald 10 krónur og 90 aura! Þótti mér ekki lítið vænt um þetta. (Dægradvöl, bls. 278-279.) Fyrsta rannsóknasmásjáin á íslandi? Mér hefur dottið í hug að smásjáin sem Fiske gaf Lærða skólanum hafi verið fyrsta tæki sinnar tegundar, sem nýttist til rannsókna á Islandi. Raunar játa ég að ég hef ekki kannað þessa sögu til hlítar og vel má vera að einhvers hafi fyrr flutt hingað smásjá og notað við Benedikt Gröndal. rannsóknir. En smásjáin frá Fiske er til - eða meginhluti hennar. I tækjageymslu Menntaskólans í Reykjavík er í vönduðum viðarkassa nítjándu aldar smásjá úr gljáandi messingi, auðkennd framleiðanda, CARLZEISS JENA. Með smásjánni eru nokkrar linsur (viðfangs- gler, „objektíf4) með mismunandi stækkun, meðal annars olíuídýfulinsa sem trúlega stækkar 90 til 100 sinnum, og augngler sem margfalda þá stækkun um eða yfir tífalt. (Raunar er stækkunin ekki skráð á viðfangsglerin, eins og nú tíðkast; í þess stað stendur brennivídd linsukerfisins, en út frá henni má reikna stækkunina ef þekkt er lengd geislabrautar smásjárinnar, sem ég veit því miður ekki, tækið er greinilega sniðið eftir öðrum staðli en nú tíðkast í þeim efnum.) Nokkrir fylgihlutir eru í kassa smásjárinnar, en ljósþéttir undir viðfangsborði hennar er því miður horfinn. Fullljóst er að þetta er tækið sem Benedikt Gröndal greinir frá, því á málmplötu á fæti smásjárinnar er letrað að hún sé gjöf til skólans frá Willard Fiske. En ekki er jafnljóst hvort þetta er fyrsta smásjáin sem notuð var til rannsókna á Islandi. A nítjándu öld var - eins og síðan - völ á ómerkilegum linsukerfum sem náðu óskýrum myndum af þröngu sviði og nýttust vart nema sem leikföng. Benedikt greinir frá slíkum tólum, sem hann hafi lítil not haft af: Ég fann þá einu sinni í Thomsons búð lítinn sjónauka, sem ég keypti fyrir 30 krónur, sem var „snyderi“, þar sem hann kostaði einungis 8 eða 10 krónur, eftir því sem ég komst að seinna; með þessu þraukaði ég fyrst; seinna keypti Jón Hjaltalín (sem þá var í Edinborg) annan sjónauka fyrir mig fyrir ca 1 £, ónógan samt; Jón Þórarinsson keypti hann af mér. En lítið fann ég með þessum verkfærum. (Dægradvöl, bls. 278.) I læknasafninu á Nesstofú á Seltjarnamesi em engar gamlar smásjár en nokkrar em þar á skrá, og engin eldri en sú sem hér er fjallað um. Ekki er fúllleitað; vel má vera að heimildir megi fínna um eldri smásjár hérlendis. En þessi stutta saga stendur samt fyrir sínu. Heimildir Benedikt Gröndal. Dýraríki Islands. Teikningar eftir Benedikt Gröndal gerðar á árunum 1874-1905 ásamt formála og tegundaskrá höfundar. Steindór Steindórsson frá Hlöðum ritar eftirmála. Bókaútgáfan Örn og Örlygur hf. 1975. Benedikt Gröndal. Dægradvöl. Ingvar Stefánsson sá um útgáfuna. Mál og menning 1965. Jónas Hallgrímsson. Ritverk. Ritstjórar Haukur Hannesson, Páll Valsson og Sveinn Yngvi Egilsson Svart á hvítu 1989. Heimaerbezt 437

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.