Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Blaðsíða 22

Heima er bezt - 01.09.2006, Blaðsíða 22
y Sigurður Helgason: Þannig varð saumavélin til Urn t>órn r - Nei, því miður, herra minn. Eg hef hvorki löngun né tœkifœri til að skipta mér af þrjónavélum, en efþér getið fundið upp vél til að sauma með, þá skal ekki standa á mér. Eigandi vélaverksmiðju einnar í borginni Boston í Bandaríkjum Norður-Ameríku kvaddi mann, sem komið hafði til fundar við hann í sölumiðstöð verksmiöjunnar, með þessum orðum. Gesturinn varð fár við og fór leiðar sinnar. Þetta var árið 1841. Verksmiðjueigandinn sneri sér að ungum, fölleitum manni, sem vann hjá honum og var þama nærstaddur: - Heyrðir þú það, sem ég sagði við piltinn, spurði hann. - Segðu mér annars eitt, Elías. Ætli þú gætir ekki fundið upp vél, sem væri hægt að láta saurna með jöfnum og fallegum nálsporum? Þú, sem ert svo snjall vélamaður. Elías Howe rétti úr sér og leit á húsbónda sinn. - Ég hefði ekkert á móti því að reyna það, svaraði hann og hélt síðan áfram vinnu sinni. II. A daginn átti Elías Howe allt of annríkt við starf sitt í vélasölunni til þess að geta sökkt sér niður í umhugsunarefnið, sem húsbóndi hans hafði bent honum á. En á kvöldin, þegar hann var kominn heim og sat hjá konu sinni í eldhúskytrunni þeirra og horfði á hana, þar sem hún laut ofan yfir sauma sína við dauft og flöktandi kertaljósið, hugsaði hann því meira um það. Þau áttu ekki lampa, og hún hafði fengið sér þessa vinnu til að auka tekjur þeirra lítið eitt. Þeim veitti ekki af því. Einu sinni stakk hún sig í fingur á nálinni og felldi niður saumana, meðan hún saug blóðið úr stungunni. Um leið varð henni litið á mann sinn. Um hvað ert þú að hugsa, Elías, spurði hún vingjarnlega. - Ég er að hugsa um það, svaraði hann, - að þú þyrftir ekki að vinna þér um megn, ef þú hefðir vél til að sauma þetta með og fengir líka meira í aðra hönd á miklu skemmri tíma. Kona hans brosti, beit saumþráðinn úr nálarauganu og 446 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.