Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Blaðsíða 37

Heima er bezt - 01.09.2006, Blaðsíða 37
 A leiðinni niður að ánni gengu menn á eigin hraða hverjyrir sig, en eftir að komið varyfir ána, héldum við hópinn. Fararstjórinn Björn Þorsteinsson, sagnfræðingur, er hér að vaða yfir ána í dalnum, sem við þurftum að fara yfir til að komast að skriðjöklinum. Horft niður af jöklinum, tveir ferðalanganna í forgrunni. svo fór að ég féllst á að fara með tvo veiðimenn í einu út á inníjarðarflóann. Bægslagangurinn í þeim var svo mikill að báturinn tók á sig sjó, en engin ausa um borð í bátnum. En þegar lcomið var að hinum var Bjöm farinn og þeir ætluðu alveg að ganga yfir mig með fyrirskipunum en gátu samt ekki komið sér saman um hvert skyldi halda. Annar vildi út á djúpið en hinn nær árósnum, en ég átti fullt í fangi með að rétta bátinn af, því veiðikappið var á svo háu stigi. Ég reri ýmist hálfa leið nær djúpinu eða stutta leið nær árósnum, unz mér hugkvæmdist að róa í hringi og líta á klukkuna. Þá samþykktu þeir loks að ég reri strax til lands. Það voru nokkuð þreyttir menn sem báru sjálfir aflann og stikuðu upp að gistihúsinu skömmu áður en nafnakallið fór fram fyrir Brattahlíðarferðina. Það tók póstbátinn aðeins um tíu mínútur að flytja okkur að litla viðlegupallinum fyrir framan árósinn hjá Brattahlíðarhvamminum. Þar var minnsta korta- og minjagripabúð sem ég hafði séð, enda aðeins pláss fyrir afgreiðslumanninn innan dyra. A leiðinni hafði Björn sagt sögu landnámsins þarna á nokkrum tungumálum og hafði náð að fanga athygli ferðamanna. „Fylgið mér“, sagði Bjöm um leið og hann sté í land. Þar var víðast grasvöxtur og svo til jafnþéttur uppi á hæðunum sem annars staðar. Við áðum á háa lækjarhólnum, þar sem sagt er að Þjóðhildur, eiginkona Eiríks landnámsmanns, hafi reist kapellu, en hún hafði tekið kristna trú og vildi sýna það í verkum sínum. „Komið og sjáið“, sagði Bjöm og benti brosandi í norðvestur. Þar sáum við eina brekkurótarsvæðið þar sem sást i bergklappir undir gmnnum jarðvegi. Við læddumst þangað, barmafull af eftirvæntingu og fómm hægt yfír til að missa ekki af neinu. Brátt numum við staðar þar sem við sáum móta fyrir tveimur bæjarrústum er vom þama í Heimaerbezt 461

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.