Heima er bezt - 01.09.2006, Page 15
ég fyrir Ásgeir Sigurðsson skipstjóra
sem sagði mér að því miður væru engin
rúm laus. Eg sagðist nauðsynlega þurfa
að komast suður og að mikið væri í
húfi en Ásgeir sá enga möguleika til
þess. Meira að segja væri ekki rúm fyrir
fleiri farþega í lestinni. Þá minntist ég
orða vinar míns Bjöms Eyvindssonar
hafnsögumanns í Lækjamesi sem ég
kynntist þegar ég var á Hornafírði árin
1930 og 1931.
„Ef þú átt einhvemtíma eftir að ferðast
með Esjunni og öll mm upptekin þá skalt
þú nefna nafn mitt við Ásgeir og benda
honum á hafnsögumannaklefann.“
Það gerði ég nú og fékk ég klefann.
Þetta var upphaf langrar vináttu okkar
Ásgeirs. Þremur áratugum síðar vildi
svo til að ég var farþegi með Ásgeiri
í hans hinstu ferð til Noregs haustið
1961. Hann varð bráðkvaddur í Noregi
eftir að hafa siglt Heklunni fullri af
farþegum í stjórsjó á milli Færeyja og
Noregs.
Það var logn og spegilsléttur sjór
þegar Esjan renndi út Eskiijörð og
Hólmatindurinn baðaði sig í sólskininu.
Þegar Esjan fór fyrir Hólmanesið var
mér þungt í huga og það hvarlaði að
mér að snúa við en slíkt kom auðvitað
ekki til greina.
Á Reyðarfirði var ákveðið að stansa
fram undir miðnætti, en sá stans varð
nú heldur betur lengri, því um kvöldið
gerði stórviðri og ekki viðlit að hreyfa
sig þaðan. Eg hafði notað tímann til að
kveðja vini mína þar sem vora margir.
Þegar ég ætlaði að fara til skips var ekki
ekki stætt á götum úti og ómögulegt að
komast út í skipið. Eg hélt mig því um
nóttina heima hjá einum vina minna.
Um morguninn lægði veðrið. Þá bámst
fréttir um að rniklir mannskaðar hefðu
orðið þessa nótt. Herlið sem þar var hafði
lagt af stað í göngu yfir Eskiijarðarheiði
til Eskifjarðar í góða veðrinu daginn
áður. Þegar óveðrið skall skyndilega
á urðu margir þeirra úti á heiðinni, en
aðrir komust við illan leik að kotbænum
Veturhúsum þar sem vel var hlúð að
þeim þrátt fyrir lítil húsakynni. ítarleg
frásögn Bergþóru Pálsdóttur, dóttur
húsráðenda, af þessum atburði er að fínna
í Eskju, minningarriti Eskfirðinga, sem
Eskfírðingurinn Einar Bragi Sigurðsson
ritaði í 5 bindum.
Sýsluskrifstofurnar í Stykkishólmi.
Gömul myndfrá Eskifirði.
Bústaður sýslumanns og skrifstofur í Stykkishólmi.
Heinra er bezt 439