Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Síða 24

Heima er bezt - 01.09.2006, Síða 24
mjög vandað. En svo góð gat saumnálin samt aldrei orðið, að vinnan við saumana væri ekki alltaf bæði seinleg og þreytandi, og engin teljandi breyting varð á því, fyrr en saumavélin kom til sögunnar. Fyrsta tilraunin til að setja saman vél í því skyni að draga úr erfíðinu við saumana, var gerð fyrir hér um bil 200 árum. Englendingur einn, Charles F. Weisenthal að nafni, átti heiðurinn af henni. Hann gerði frumsmíði að saumavél og fékk einkaleyfí fyrir uppgötvun sinni 1755. Nálin í henni var ydd á báðum endum og augað var á henni miðri, en því miður var vélin ónothæf og gagnslaus. Næstu tilraun, sem sögur fara af, gerði annar Englendingur, Thomas Saint, 35 árum síðar. Vél hans var til þess ætluð að sauma leður, en hún varð ekki heldur að gagni. A næstu áratugum unnu tveir Englendingar, Stone og Henderson að nafni, að því að fínna upp saumavél, og sömuleiðis Tyrolbúinn, Madersperger, en engum þeirra heppnaðist Elias Howe. að fínna upp svo fullkomna vél, að hún gæti talizt fyllilega nothæf. Þá er næst að nefna franskan skraddara, Barthelemy Thimonnier að nafni. Hann átti heima í bæ, sem nefnist St. Etienn. Hann var aðeins fátækur handverksmaður, en tókst þó að gera nothæfa saumavél eftir margra ára óþreytandi elju og óteljandi árangurslausar tilraunir. Arið 1830 fékk hann einkaleyfí fyrir uppgötvun sinni. Vél Thimonniers var úr tré og saumaði svonefndan keðjusaum. Hann er í aðalatriðum þannig, að hver lykkjan tekur við af annarri eftir saumnum endilöngum, og grípa þær hver í aðra. Slitni þráðurinn á einum stað, raknar allur saumurinn upp. Nálin var með eins konar agnhaldi eða krók við oddinn, líkt og er á heklunálum. Uppgötvunin vakti allmikla athygli. Thimonnier settist að í París, og ýmsir mikilsmegandi menn hétu honum stuðningi til að koma henni á framfæri. fnnan skamms var hún tekin til notkunar og þess er getið, að um skeið hafí verið unnið samtímis með 80 vélum af þessari gerð á verkstæði einu í Parísarborg, þar sem saumaðir voru einkennisbúningar fyrir hermenn. En það var öðru nær, að allir fögnuðu þessari nýju vinnuvél, og sízt þeir, sem báru hita og þunga dagsins af erfíðinu við saumastarfið. Þeir óttuðust, að saumavélin mundi spilla atvinnu þeirra. Og svo fór, að hópur skraddara brauzt inn í verkstæðið og eyðilagði vélamar. En Thimonnier gafst ekki upp. 1845 stofnaði hann saumavélaverksmiðju í félagi við annan mann. Þetta virtist ætla að heppnast. Vélamar vom seldar á 35 krónur hver. Þremur ámm síðar (1848) höfðu þær verið endurbættar og saumuðu eftir það rúmlega 200 nálspor á mínútu. - En stjómarbylting, sem varð í Frakklandi þetta ár, Febrúarbyltingin svonefnda, hindraði starfsemi verksmiðjunnar, og Thimonnier varð loks að gefast upp. Nokkrum árum síðar dó hann, snauður og óþekktur. VI. Samtímis Thimonnier unnu margir aðrir hugvitsmenn að þessu sama viðfangsefni. í Bandaríkjunum, Englandi og Frakklandi vom veitt yfír 30 einkaleyfí fyrir saumavélum á ámnum frá 1830 til 1850. Allt voru þetta frumsmíðar, og það var sameiginlegt með þeim öllum, að þær voru komnar of skammt á veg til þess að geta orðið að notum. Ein þessara tilrauna var merkust. Sá, sem gerði hana (1832-1834), hét Walter Hunt og var Bandaríkjamaður. Honum hafði hugkvæmzt að nota tvo þræði. Annan lét hann nálina koma með ofan frá og fara með hann tvöfaldan niður í gegn um efnið, sem átti að sauma. Þegar nálin fór upp aftur, gerði núningsmótstaðan milli hennar og efnisins það að verkum, að undir neðra borði þess myndaði saumþráðurinn lykkju, nægilega víða til þess, að svonefnd skytta geti farið í gegn um hana með annan þráð, sem vamaði því, að lykkjan drægist upp aftur, en hins vegar hertist vel að báðum þráðunum inni í efninu, sem verið er að sauma. Augað var við oddinn á nálinni. Með þessari aðferð er hinn svonefndi stangasaumur gerður. og hann átti mikla framtíð í vændum. En Hunt fullgerði aldrei uppgötvun sína og er því talið um að kenna, að hann hafí skort þrek og þrautseigju, bæði 448 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.