Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Page 42

Heima er bezt - 01.09.2006, Page 42
„Þú ert beztur af öllum, Ari, og hvergi vildi ég frekar vera, en hjá þér“. „Þá er bezt að ég taki þig heim með mér núna, bifreið mín bíður héma úti. Treystir þú þér ekki til þess að koma með mér?“ „Jú, ég get vel setið í bifreið smáspöl“. „Þá er bezt að biðja Svanhvíti, vinstúlku okkar, að búa þig undir ferðalagið. Hún hlýtur að koma hingað bráðlega“. Svanhvít er ekki langt undan, hún gerir ráð fyrir að samtalið sé komið á réttan rekspöl, og gengur innan stundar aftur inn í herbergi vinstúlku sinnar. Ari situr við legubekk Áslaugar og heldur um hönd hennar. Svipur beggja ber vott um gleði, og Ari segir við Svanhvíti: „Áslaug ætlar að koma heim með mér og dvelja hjá okkur fyrst um sinn“. „Það gleður mig að heyra, þá er öllu borgið í bili“. Ari rís á fætur, en Svanhvít gengur að legubekk Áslaugar og hjálpar henni að klæðast ferðafötum. Svo tekur hún saman það nauðsynlegasta af farangri hennar og setur það niður í tösku. Áslaug nýtur umhyggju vinstúlku sinnar eins og lítið bam, og heit þakklætistár leita stöðugt fram í augu hennar. Ari tekur við ferðatöskunni, en Svanhvít leiðir Áslaugu út að bifreið hans. Þar kemur hún henni vel fyrir í framsætinu, og Ari sezt í ökumannssætið við hlið Áslaugar. Svanhvít veit að nú er vinstúlku hennar vel borgið. Hún kveður hana með hlýjum kossi og lofar að koma bráðlega í heimsókn til hennar. Svo kveður hún Ara og gengur aftur inn í herbergi Áslaugar til þess að hagræða þar ýmsu og loka íbúðinni. Að því loknu hraðar hún sér heim á sjúkrahúsið, létt í spori og sigurglöð. * * * Hljóðlátt síðvetrarkvöld sveipar þunnri húmslæðu hina fögru höfuðborg. Áslaug frá Hvammi situr ein í vistlegu herbergi, hallar sér fram á lítið stofuborð, grúfir andlitið í höndum sér og grætur. Hún er nýkomin heim frá því að fylgja baminu sínu til grafar, og hin dýpsta sorg gagntekur sál hennar. Hinn hannþrungni hugur Áslaugar lítur yfir atburði síðastliðinna vikna. Henni hefir liðið vel á heimili Ara. Móðir hans hefir reynzt henni sem bezta móðir, og enginn hefír nokkru sinni minnzt á hrösun hennar. Fyrir hálfum mánuði síðan fæddi hún bamið sitt, stúlku, en hún var strax frá fæðingu fárveik og afskræmd af þjáningum. Hin skerandi, sáru hljóð bamsins hljóma ennþá í sál Áslaugar, og vekja ómælisdjúpar samvizkukvalir í sál hennar. Átti hún ekki sök á sjúkleika barnsins síns og kvöl? Gat annað verið en bamið hennar hlyti slík örlög? Hún, móðirin, sem stöðugt var undir áhrifum áfengis, gegnsýrð af tóbakseitri og oft næringarlítil dögum saman. Litla, saklausa barnið hennar heftr dáið fyrir hinar hræðilegu pyndingar móðurinnar. Áslaug grætur sárt og lengi. Hið fyrra líf hennar skapar stöðugt dýpri viðbjóð í sál hennar, eftir því sem hún hugleiðir það lengur. í dag, við gröf litla bamsins síns, strengdi hún þess heit að byrja nýtt líf og verða heiðarleg stúlka héðan í frá. En framtíð hennar er með öllu óráðin. Áslaug veit ekki hve lengi hún fær að dvelja á hinu góða heimili Ara vinar sins, á það hefir hann aldrei minnzt. Við hlið Ara yrði hún að nýrri og betri stúlku. En hún getur ekki vænzt þess að hann vilji bindast sér, eftir alla hennar niðurlægingu og smán, þó hann hafi ef til vill einu sinni haft það í huga að njóta ástar hennar. En vináttu hans vonast hún til að eiga þrátt fyrir allt, og henni skal hún aldrei glata. 466 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.