Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Page 44

Heima er bezt - 01.09.2006, Page 44
Áslaug brosir dálítið glettin, en Svanhvít andvarpar næstum dapurlega. „Nei, slíkt kemur ekki til greina, Áslaug mín, ég hugsa ekki um þá hluti“. Áslaug lýtur höfði um stund, en svo segir hún lágt: „Einu sinni sagði ég þér ósatt, Svanhvít, og mikið iðrast ég þess nú“. „Hvenær var það, Áslaug mín?“ „Þá vorum við heima í sveitinni okkar, ég kom í heimsókn til þín á fögru sumarkvöldi, og þú fylgdir mér á leið, þegar ég fór til baka. Það sumar stunduðu þeir vinimir, Gunnar og Ari, laxveiðar í Hvammsánni. Manstu ekki eftir því?“ Svanhvít lítur dálítið undrandi á vinstúlku sína, en svipur hennar leynir ekki hinum niðurbælda sársauka, sem samtalið ýfir upp í sál hennar. Svanhvít segir: „Jú, ég man eftir því, að þeir stunduðu laxveiðar í Hvammsánni, en það er óþarfi að rifja það upp núna“. „Nei, ég verð að segja þér sannleikann, Svanhvít mín. Ég sagði þér þá að Gunnar væri heitbundinn stúlku í Reykjavík, eða eitthvað á þá leið, en það var með öllu ósatt, ég var sjálf hrifin af Gunnari, en hélt að þú yrðir mér skæður keppinautur. Og þess vegna sagði ég þér ósatt, svona var ég ómerkileg. Getur þú fyrirgefíð mér það, Svanhvít?" „Mér fínnst ég ekkert hafa að fyrirgefa þér, Áslaug, við Gunnar þekktumst eiginlega ekki neitt, og ég hefi aldrei séð hann síðan á héraðssamkomunni að Hofsvöllum“. „Nei, en hefði ég aldrei sagt þér ósatt, hefði fundum ykkar ef til vill borið aftur saman, og þess vegna kvelur samvizkan mig nú“. „Hafðu rólega samvizku þess vegna, Áslaug mín, en gerðu það eitt fyrir mig, að minnast aldrei á þetta framar“. Áslaug rís á fætur, leggur handlegginn um hálsinn á vinstúlku sinni og felur andlitið undir vanga hennar. Svanhvít brosir og strýkur blíðlega yfir vanga Áslaugar, en ósjálfrátt fínnur hún til gleði í hjarta sínu yfír játningu vinkonu sinnar. Áslaug gengur fram úr stofunni og framreiðir kaffí handa þeim. Svanhvít tefur lengi og nýtur gestrisni Áslaugar, en svo er dvalartími hennar á þrotum, og hún býst til brottferðar. Þær kveðjast með miklum innileik, vinkonumar, og Svanhvít heldur leiðar sinnar. En Áslaug horfír á eftir vinkonu sinni þar til hún hverfur henni úr augsýn, og augu hennar blika full af táram þakkar og vináttu. „Guð og gæfan fylgi þér, göfuga æskuvinkona“, hvíslar hún og strýkur burt tár sín. Nú eru leiðir þeirra skildar að sinni, og ókunn ævintýralönd bíða ungu prestsdótturinnar frá Fjalli. * * * Sumarið er liðið. Danmörk, hið ókunna ævintýraland Svanhvítar Ámadóttur hjúkranarkonu, er þegar hjúpað fölva og helgiró haustsins. Laufíð fallið af trjánum, akramir bleikir, söngur fuglanna hljóðnaður, nóttin dimm, og öldur hafsins svarra þungt við ströndina. Svanhvít hefir lokið hjúkrunamámi sínu við stórt sjúlvrahús í Kaupmannahöfn, og innan skamms hyggst hún sigla heim til föðurlandsins að nýju. Hin unga hjúkranarkona hefir náð miklum vinsældum meðal sjúklinga sinna og samstarfsmanna og kvenna. Henni hefír boðizt staða við sjúkrahúsið, en hún kýs að hverfa heim til Islands og starfa þar. Svanhvít situr í vistlegu einkaherbergi í hinu stóra sjúkrahúsi og nýtur hvíldar að starfi loknu. En skyndilega er þögnin umhverfis hana rofm. Léttu höggi er drepið á herbergishurðina. Svanhvít rís á fætur og gengur til dyra og opnar þær. Doktor Jörgensen, yfirlæknir sjúkrahússins, stendur við dymar. Hann hneigir sig brosandi og segir: „Fyrirgefið þér ónæðið, fröken Svanhvíf‘. „Það er ekkert að fyrirgefa, doktor Jörgensen. Get ég eitthvað gert fyrir yður?“ „Já, og það er dálítið stórvægilegt sem mig langar að biðja yður. Fyrir stundu síðan kom maður hingað til sjúkrahússins og bað um aðstoð hjúkranarkonu á einkaheimili. Málavextir eru þannig, að nokkuð langt héðan frá borginni er gamalt herramannssetur á afskekktum stað úti á ströndinni. Þar býr gömul hefðarfrú ásamt syni sínum, herra Fjallström. Gamla konan er veik og hefir legið rúmföst um tíma, þjónustufólkið getur ekki veitt henni þá hjúkran sem með þarf, en gamla frúin aftekur með öllu að fara á sjúkrahús, og sonur hennar getur ekki hugsað sér að neyða hana til neins. Gamla frúin þarf góða hjúkranarkonu, og hr. Fjallström, sem er vinur minn, kom hingað í leit að hjúkranarkonu, til þess að stunda móður sína á meðan hún liggur sjúk. En ég hefí meira en nóg með mitt starfslið að gera, eins og þér vitið, fröken Svanhvít, og get enga hjúkranarkonu misst. En þar sem mig langar til að hjálpa þessum vini mínum, kom mér til hugar að fara þess á leit við yður, hvort þér vilduð ekki fresta heimför yðar um tíma og hjúkra gömlu frúnni þar til eitthvað rætist úr fyrir henni“. Svanhvít hikar við svarið. Hvað á hún að gera? Takmarki námsins er náð, og heimþráin svellur í sál hennar, en gömul, sjúk kona þarfnast hjálpar, og doktor Jörgensen leitar til hennar eftir aðstoð. Hún má ekki neita, slíkt hæfði ekki köllun hennar. Svanhvít lítur á doktor Jörgensen og segir: „Eg skal verða við ósk yðar, doktor, þar til eitthvað rætist úr fyrir gömlu konunni með aðra hjúkranarkonu“. „Ég er yður mjög þakklátur, fröken Svanhvít, ég segi þá vini mínum, hr. Fjallström, að þér ætlið að fara með honum. Hann bíður hér fyrir utan sjúkrahúsið í vagni sínum“. „Já, þér megið segja honum það, ég skal verða tilbúin innan lítillar stundar". Doktor Jörgensen hraðar sér út að vagni vinar síns og segir honum hin farsælu málalok, en Svanhvít býr sig til ferðar í skyndi. Hin unga hjúkranarkona stígur inn í vagninn hjá herra Fjallström, og hann ekur þegar af stað. Vagninn er fom að gerð, en mjög skrautlegur og ber ljósan vott um gamla hefð og ríkidæmi eigenda sinna. Svanhvít virðir hann fyrir sér á meðan hún kemur sér þægilega fyrir í dúnmjúku, flosklæddu sæti við hlið herra Fjallström. En svo beinist athygli hennar að sjálfum ökumanninum. 468 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.