Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Side 47

Heima er bezt - 01.09.2006, Side 47
Þannigfarast skáldinu orð um útbúnaðinn kringum lœkinn, og er hann ekki myrkur í máli fremur en endranœr. Hefur auðsjáanlega verið mikið talað um fegrun bœjarins um aldamótin [1900], ekki síður en nú. Utreiðartúrar um nágrenni bæjarins og stundum lengra, var ein helzta skemmtun bœjarbúa í gamla daga. I áðurnefndri ritgerð lýsir Gröndal þeim svo: „ Utreiðir tíðkast hér á sumrin eins og áður, bæði á gœðingum og truntum, sem hafa stunið alla vikuna undir móhripunum ogfá svo að hvíla sig á sunnudagsreiðunum; þá er líklega „ Dýraverndunarfélagið “ til að taka á móti þeim ", Eins og sjá má af þessum orðum skáldsins, hefur honum ekki þótt mikið til þessara útreiða koma, og skopast heldur en ekki að þeim, eins ogfleiru í hinni skemmtilegu ritgerð sinni. En auk þess, sem fyrirfólkið, sem þá var kallað, lagði stund á þessa tegund útilífs, voru útreiðartúrarnir bezta og hollasta skemmtun og upplyftingjýrir margan almúgamanninn, sem varð að þrælka myrkranna á milli hvern virkan dag vikunnar. Myndin sýnir hóp útreiðarfólks á Lœkjartorgi. Það er auðséð, að þetta er einhver tyllidagur, því að danski fáninn (en þá var enginn íslenzkur fáni) er dreginn við hún, og svo virðist, sem ferðafólkið beri á sér einhver merki. Strákarnir, sem sitja í röð á timburhlaðanum, fylgjast vel með því sem gerist og langar áreiðanlega að koma á bak einhverjum gœðingnum. HEB 1955 Frá miöbænum í Reykjavík Gamlar myndir segja oft meira um liðna tíð en langar frásagnir. Kemur þetta ekki sízt fram í sambandi við myndir frá Reykjavík í gamla daga. Engir staóir á landinu hafa tekið eins örum breytingum og höfuðstaðurinn, sem hefur vaxið úr nokkur þúsund íbúa kaupstað í þokkalega borg, jafnvel á erlendum mœlikvarða. Nú eru, eins og kunnugt er, vfir [170 þús.J íbúar í bænum. En jafnvel þótt bœrinn hafi vaxið ört, hafa furðulitlar breytingar orðið í nokkrum hluta miðbœjarins. Ymis hinna gömlu húsa, sem mikil saga var tengd við, standa ennþá, en götumar hafa breyzt; þar sem áður var forarleðja í rigningum og óþolandi ryk íþurrkum, eru nú rennislétt, malbikuð stræti. Umhverfið [á myndinni erj orðið allt annað. Nú er Tjarnarlœkurinn ekki lengur til ofanjarðar; honum var lokað fyrir áratugum síðan. A myndinni sézt lœkurinn, þar sem hann rennur í stokk meðfram Amarhólstúninu, og þokkaleg brúyfir, á stígnum upp að landshöfðingjahúsinu, eða núverandi Stjórnarráðshúsi. Benedikt Gröndal skáld lýsir lœknum eins og hann var um aldamótin i grein sinni „Reykjavík um aldamótin ", sem kom fyrst út í Eimreiðinni og [síðanj aftur i Ritsafini hans. Honum farast orð á þessa leið: „Lœkurinn kemur úr Tjörninni, en vatnið síast í hann úr Vatnsmýrinni, og rennur hann (eða firemur „ liggur ", því enginn straumur er í honum) út í sjó fýrir neðan Arnarhólskletta. Lækjarbakkarnir hafa fyrrum verið hlaðnir upp með grjóti, en nú er það allt mjögfallið og Ijótt útlits, þar sem ekkert hefur verið um það hirt, þótt alltaf sé verið að tala um að „prýða bæinn “ og stórfé fleygt út íýmislegt annað; einungis fýrir framan landshöfðingjahúsblettinn, er lœkjarbakkinn bæjarmegin hlaðinn upp með telgdu grjóti, hefur kannski þótt skömm að, að láta hið sama vera ávallt fýrir augum landshöfðingjans, sem aðrir verða að þola. Aður voru og grindur meðfram læknum bœjarmegin, en nú eru þær horfnarfýrir löngu, líklega til þess að auka frelsið, svo að hver geti drepið sig sem vill, eða eigi hægra með það MYNDBROT Átt þú í fórum þínum skemmtilega mynd, t.d. af atburði, stað, húsum, dýrum eða fólki, sem gaman væri að birta í Myndbroti? Ef svo er því ekki að senda okkur hana til birtingar og leyfa lesendum HEB að njóta hennar líka? Heima er bezt 471

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.