Heimili og skóli - 01.10.1946, Qupperneq 3
Heimili og skóli
TÍMARIT UM UPPELDISMÁL
5. árgangur. September—Október
5. hefti
ANNA S. SNORRADÓTTIR:
Barnatímar í
B. B. G.
!; Ungfrú Anna S. Snorradóttir er dóttir Snorra |
j! Sigfússonar, skólastj. á Akureyri. Hún er stúd- !!
!; ent frá Menntaskólanum á Akureyri. Síðastf. ;
!! vetur fór hún til Lundúna og dvaldi þar um átta J;
mánaða skeið og kynnti sér útvarpsstarfsemi !|
\\hjá B. B. C. Aðalfega Iagði hún stund á að ;;
'! kynna sér barnatímana og skólaútvarpið, en !|
;; auk þess uppsetningu leikrita og léttari þátta
!; og hljóðgerfinganotkun við hin ýmsu dagskrár- j;
;! atriði. !;
Þeir munu ekki margir, sem hafa
ekki komizt í kynni við brezka útvarp-
ið að meira eða minna leyti.
B. B. C., eins og það er ávallt nefnt,
en þeir einkennisstafir standa fyrir
„British Broadcasting Corporation",
hefur hina víðtækustu starfsemi allra
útvarpsstöðva heims, svo að ekki eru
undur, þótt það sé víða þekkt og víða
vinsælt.
B. B. C. er geysilegt bákn og völund-
arhús hið mesta.
Ekki má skilja orð mín svo, að út-
varpið hafi aðsetur sitt í einu stórhýsi,
sem illt sé að rata um, því að langt er
frá því að svo sé, en útvarpsstarfið og
starfshættir allir eru báknið og völ-
undarhúsið, sem ég á við.
B. B. C. hefur aðsetur sitt í fjöl-
mörgum stórhýsum, þótt Broadcasting
House, venjulega nefnt B. H. af út-
varpsfólki, sé aðalbækistöðin.
Mörg önnur stórhýsi útvarpsins er
að finna víðs vegar í borginni, svo sem
Brock House, Film House, Rothwell
House, Bush House o. m. fl.
Þá er og útvarpað úr mörgum leik-
húsum, kirkjum og konsertsölum.
Ég ætla mér engan veginn að skýra
frá starfsháttum B. B. C. í stuttri tíma-