Heimili og skóli - 01.10.1946, Side 18
HEIMILI OG SKÓLI
112
Lestrarverkefni
„Nú má ég fá að fara út að Hæli í dag og finna afa 18
minn. Ég fæ að vera þar í nótt, af því að ég hef verið svo 35
væn að æfa mig að lesa þennan síðasta mánuð. Afi bað 53
mömmu að lofa mér að vera hjá sér þessa nótt, ef mér 69
færi vel fram að lesa. Ég hef bætt við mig fimmtán atkvæð- 85
um, svo að afi hlýtur að vera ánægður. Já, bara þessi eina 105
nótt, og svo kemur afmælisdagurinn minn á morgun. Ég 121
veit, að afi mun ætla að gefa mér eitthvað í afmælisgjöf. 139
Ó! ég er svo glöð, að ég ræð mér ekki fyrir tilhlökkun.“ 155
Elín litla var tindilfætt út illþýfða móana, áleiðis til 174
Önundar afa síns. Móð og másandi öslaði hún yfir hvers 192
konar torfærur, sem á veginum voru, og náði að Hæli rétt 211
áður en skyggja tók. Afi stóð úti á hlaðvarpa og tók á móti 231
sonardótturinni opnum örmum. Súkkulaði og kökur voru 249
á dúkuðu borði, þegar inn í baðstofuna kom. Afmælisfagn- 269
aðurinn var þegar byrjaður. Kvöldið leið við söng, sögur 285
og alls konar leiki. Næsta morgun kom svo afmælisgjöfin. 302
Það var bréiða í haglega gerðum íslenzkum skautbúningi. 319
Elín ljómaði af gleði. Hún lagði hendurnar um háls afa 337
síns og sagði: ,,Ég skal ávallt reyna að vera dugleg og góð 354
stúlka. Góði guð, hjálpaðu mér til þess.“ 365'