Heimili og skóli - 01.10.1946, Síða 19
HEIMILI OG SKÓLI
113
Tvö
réttritunarverkefni
i.
Mangi heyrði kettlinginn söngla
liðlangan daginn. Sveinki missti kver-
ið sitt í hverinn og seinkaði því, þótt
fóthvatur væri. Kunningi minn á eng-
an ættingja í Reykjahverfi. Eyjólfur
var á gægjum eftir leigjendum sínum.
„Flýjum ekki, þó að rigni eldi og
blýi,“ sagði Svíinn. Ef ég sæi aumingja
drenginn, skyld 5 ég gefa honum nýja
vettlinga. Héðinn bað drottin að
hjálpa sér, þegar hann sá himininn
þakinn skýjum. Sæunn sat allan dag-
inn með veikan krakkann, og næstu
nótt fékk hvin lítinn eða engan svefn
fyrr en undir morgun. Stúlkan var far-
in, þegar bóllinn var sleginn.
2.
Egill sagði frá ýmiss konar nýjung-
um, er hann hafði kynnzt í Englandi.
Engin skip sigldu til Þýzkalands í
nóvember. Stýrimaður greip annarri
hendi í bjarghringinn, þegar bátnum
hvolfdi. Systkinunum gramdist, þegar
örninn hremmdi lambið. Árný slökkti
á lampanum, þegar hún gat ekki
kembt lengur fyrir þreytu. Mér var
fylgt yfir heiðina, því að alls staðar
var skeflt í sporin. Pétur hresstist, þeg-
ar húsfreyja hafði fyllt bollann á ný.
Tortryggni er ódyggð, sem íslendingar
þyrftu að úthýsa. Þessi kennslubók er
snilldarlega samin, enda viðurkennd
af menntamönnum hér í grennd. Hver
hefur kveðið svo snjallt kvæði?