Heimili og skóli - 01.03.1949, Síða 3
Barnablaðið ÆSKAN
er elzta og útbreiddasta barnablað pessa lands.
Upplag ÆSKUNNAR verður aukið á þessu ári upp
í 9000.
Blaðið kemur út 12 sinnum á án_(suma mánuði tvö-
falt blað í einu). Auk þess fá allir skuldlausir kaupend-
ur litprentað jólablað.
Árgangurinn kostar 12 krónur.
Nýir kaupendur eru áminntir um, að senda borgun
með pöntun. Við viljum, að hinir ungu kaupendur
temji sér skilríki; þess vegna er jólablaðið ekki sent
nema þeim, sem hafa greitt blaðið.
Nýir útsölumenn óskast. — Há sölulaun.
Utanáskrift til blaðsins er: ÆSKAN, Box 14, Reykjavík.
V---—------■■-------------------
ÁLFUR í ÚTILEGU
heitir ný barnabók eftir Eirík Sigurðsson, kennara
í bókinni er sagt frá vikudvöl átta ára drengs með
föður sínum á eyðibýli einu langt inn í dal. Bókin
lýsir töfrum íslenzkrar náttúru, gróðri og dýralífi,
svo og atburðum og ævintýrum þessara daga.
SKÓLARÍM
eftir Kára Tryggvason og nemendur lians er nýstárleg bók. Þar
birtast barnaljóð úr skóla. Er sumt af þeim eftir kennaranna, en
sumt eftir börnin. Bókin er myndskreytt eftir Odd Björnsson,
15 ára dreng.
Kynnið ykkur rímleikni barnanna! Ferhendurnar lifi!
Bókaútgáfa Pálma H. jónssonar.
»—.—— --------------------------—■—-------—+