Heimili og skóli - 01.03.1949, Síða 12
32
HEIMILI OG SKOLI
braut og hinar bækurnar. Það er ekki
hlaupið að því að semja lestrarbók,
sem tekur tillit til allra hugsanlegra
atriða, en Gates virðist hefa leyst það
óvenjulega vel af hendi. Efni bókar-
innar er úr lífi allra stétta í borg og
bæ, við sjó og í sveit. Á sérstöku korti
geta börnin fylgst með framförum
sínum, og þeim þykir gaman af því.
Eins og lesendur þessarar greinar
munu hafa gert sér ljóst, eru aðal-
aðferðirnar þrjár: stöfunar-, hljóða-
og orðmyndaaðferð. í enn þrengri
merkingu mætti tala um greininga- og
samtengingaraðferðir.
Það er ekki tilgangur þessarar grein-
ar að benda á ágæti einnar aðferðar
fremur en annarrar, heldur aðeins
bregða daufri glætu yfir færar leiðir.
Engri aðferð eru gerð nándar nærri
full skil; en í heimildarritaskrá geta
þeir, sem hafa áhuga fyrir lestrar-
kennslu, séð, livaða bækur geyma
fræðslu um þessi efni.
í lestrarkennslu, sem í allri annarri
kennslu, er mikils virði, að kennarinn
glöggvi sig á séreinkennum barnanna,
t. d., hvort sjón-, heyrnar-, þreifi- eða
vöðvahreyfingarskynjun er hæfust til
að veita þeim eggjendum, sem við
lestrarkennsluna eru bundnir, við-
töku. Reyslan sýnir, að sé duglegur
kennari verulega hrifinn af einhverri
aðferð, nær hann oftast góðum
árangri. Slíkir áhuga- og dugnaðar-
menn skyldu þó varast að halda, að
sú aðferð, sem hentar þeim vel, sé
óbrigðul í höndum annarra; þar gild-
ir hið fornkveðna, að hver er sínum
tölum tamastur.
Úr því að ég er að skrifa um lestrar-
aðferðir á annað borð, vil ég ekki láta
hjá líða að benda á íslenzkan kenn-
ara, sem á framúrskarandi hátt hefur
náð tökum á einstaklingsbundinni
lestrarkennslu. Þessi kennari er Sig-
urður Jónsson, skólastjóri Mýrarhúsa-
skólans á Seltjarnarnesi. Sigurður er
hlédrægur maður, svo að sennilega er
honum ekki að skapi, að bent sé á
kennslu lians, en þar eð skóli hans er
svo nærri Kennaraskóla íslands, þætti
mér ekki illa tilfallið, að kennaraefn-
um yrði gefinn kostur á að kynnast
kennslu Sigurðar.
Ólafur Gunnarsson
frá Vik i Lóni.
HEIMILDARRIT
Gates: The Improvement o£ Reading. A
program of diagnostic and remedial methods.
Sami: New methods in primary reading.
O’Brien, J. A.: Silent reading. With special
reference to methods for developing speed.
A study in the psychology and pedagogy o£
reading.
Gray, C. L.: Deficiencies in reading ability.
Their diagnosis and remedies.
Ranschburg, P.: Die Lese- und Schreib-
störungen des Kinderalters. Ihre Psycho-
logie.
Montesorri Metoden.
Mogens Kyng: Læsningens Psykologi.
Erik Thomsen: Fyrirlestrar um sálarfræði,
veturinn 1947—48.
E. B. Huey: Psyckology and Pedagogy of
Reading.
Allt öfugt.
Asgeir litli fékk að fara í brauðbúðina með
mömmu sinni. Honum verður starsýnt á af-
greiðslustúlkuna, og þegar hann kemur út,
segir hann við móður sína:
„Mamma, sástu, hvernig neglurnar á stúlk-
unni voru rauðar? En svo voru þær hvítar,
þar sem þær eiga að vera svartar.“