Heimili og skóli - 01.03.1949, Síða 17
HEIMILI OG SKÓLI
37
4. Nemandi hefði af einhverjum á-
stæðum óbeit á kennara sínum og
hefði honum til skapraunar ekk-
ert lært. Slíkan nemanda þyrfti
aðeins að flytja til annars kennara.
5. í sumum tilfellum gæti verið bezt
fyrir barnið að dvelja um lengri
eða skemmri tíma í athugunarbekk,
þar sem kennslan væri miðuð við
þess hæfi.
6. Umhverfi barnsins væri svo slæmt,
að eina ráðið væri að taka það það-
an burt og koma því fyrir annars
staðar t. d. á uppeldisheimili.
Og þá er komið að öðru aðalatriði
þessarar greinar, uppeldisheimilun-
um. Þótt skólinn geri sitt bezta, væri
það í mörgum tilfellum ekki nægjan-
legt. Börn, sem hafa slæmar heimilis-
ástæður, vanrækja námið þessvegna,
og ef ekki er hægt að bæta umhverfi
þeirra, verður hreinlega að taka þau
burtu og koma þeim fyrir í þroska-
vænlegra umhverfi. Fyrir þessi börn
þarf uppeldisheimi, heimili, sem þau
eiga rétt á að eignast, þar sem foreldr-
arnir hafa brugðizt skyldum sínum.
Þörfin er þegar orðin augljós, og vís-
ir að slíkri stofnun er uppeldisskólinn
á Jaðri, hann er bara ekki starfrækt-
ur við viðunandi skilyrði.
Eg vil nú gera stutta grein fyrir
hvernig ég hugsa mér slík heimili, og
styðst þá við þá reynslu, sem ég hef
fengið af uppeldisheimilum hér í
Sviss. Eins og er, mun vera mest þörf
íyrir drengjaheimili, og mun ég því
aðallega hafa slíkt í huga, en í öllum
aðalatriðum er það sama að segja um
önnur uppeldisheimili, t. d. fyrir
stúlkur, börn (bæði kynin upp að 12
-ára aldri t. d.) og unglingspilta.
Slíkt heimili þarf að vera uppi í
sveit, bæði til þess að koma drengjun-
um algjörlega burt frá sínu fyrra um-
hverfi og til þess að fá sem fjölbreytt-
asta athafnamöguleika. Sjálfsagt væri
að reka smábú, hafa gróðurhús, ef um
heitt vatn væri að ræða á staðnum, og
eins væri æskilegt að hafa veiðiað-
stöðu í sjó eða vötnum. Þetta myndi
verða til þess, að heimilið væri sjálfu
sér nóg um ýmis matvæli, og myndi
það stórkostlega létta undir fjárhags-
lega, en það, sem þýðingarmeira er,
það myndi gefa drengjunum tækifæri
til margvíslegra og ánægjulegra starfa,
og það þýddi fullkomin umskipti frá
þeirra fyrra lífi. Þeir fengju að gera
eitthvað „spennandi", sem jafnframt
væri þó til gagns. Þeir fengju olnboga-
rúm fyrir hugvitsemi sína og starfs-
löngun, en íramkvæmdasemi þeirra
væri beint inn á nytsamar brautir.
Þetta er í fyrsta lagi, bezta aðferðin
til þess að snúa þeim frá sínu fyrra
slæpings- og strákaparaeðli, í öðru lagi
er það reynsla mín héðan, að eftir
líkamlega vinnu þykir þeim meira
gaman að sitja nokkra tíma við lær-
dóm heldur en ef kennslan á áfram
að vera aðalatriðið, og í þriðja lagi,
alh, sem þeir vinna, kemur þeim sjálf-
um til góða, þeir eru að starfa fyrir
sitt eigið heimili.
Já, eigið heimili. Er nokkurn tíma
hægt að gera uppeldisheimili að heim-
ilif Er hægt að láta drengina, sem áð-
ur er búið að hræða og ógna með að
verða sendir á uppeldisheimili, finna
að þarna eigi þeir heimleið, þar sem
þeim geti liðið vel? Ekki aðeins lík-
amlega — það er auðgert — heldur að
þeir finni þann yl, skilning og kær-