Heimili og skóli - 01.03.1949, Qupperneq 22
42
HEIMILI OG SKÓLI
frá sér hvorki meira né minna en 700
rúmcentimetra af magasafa.
Aðrir menn, sem gerðu svipaða til-
raun með hunda, komust að raun um,
að hundur, sem étið hafði í fimm mín-
útur, hafði 66,6 rúmcentimetra af
hreinum magasafa í maga sínum. Var
nú tilfinningalífi hundsins raskað,
með því að hleypa inn til hans ketti,
og varð hann hamslaus við heimsókn-
ina. Köttnrinn var síðan fjarlægður,
og kom þá í ljós, eftir næstu fimm
mínútur við áframhaldandi fóðrun,
að í maga hundsins voru nú ekki
nema 9 rúmcentimetrar af magasafa,
og honum lélegum. Næstu tuttugu
mínúturnar var framleiðslan í svip-
uðum hlutföllum, allt fyrir hina sál-
rænu truflun, sem hundurinn hafði
orðið fyrir.
Af ofangreindum staðreyndum er
auðséð, að jafnvægi sálarinnar hefur
örlagaþýðingu fyrir meltinguna, og
gildir þetta ekki aðeins um magakirtl-
ana, heldur og þarmmeltinguna, en
áhrifin eru þar raunar óbein, því að
þar stafar truflunin af því, að hinir
skemmdu magasafar hafa ekki getað
undirbúið chymus, eða fæðumaukið,
sem úr maganum kemur, svo að hún
geti leyst úr læðingi þá meltingarsafa,
sem hún annars getur fullkomlega
gert, ef undirbúningurinn af hendi
magasafans hefur verið eðlilegur.
Munnvatnskirtlarnir standa einnig
mjög undir áhrifum sálarinnar, því að
yfirstjórn þeirra, ef svo mætti segja,
er geðræns eðlis. Það er því æði margt,
sem til greina kemur af hendi sálar-
lífsins, og má nærri geta, að miklu máli
skiptir, að sú íhlutun sé heppilegs
eðlis.
En hvernig er nú ástandið í þessum
málum yfirleitt? Ætli þess sé nú gætt
sem skyldi, að varðveita rósemi hug-
ans, til dæmis við borðhaldið? Því er
nú miður, að svo er ekki. Svo má oft
heita, að réttur sé settur í deilumálum
heimilisins, er setzt er að borðum. Sær-
andi athugasemdir eru gerðar, rifizt
og skammazt. Og afleiðingin verður
svo taugaveiklun og meltingarörðug-
leikar, sem stafa af því, að menn voru
rændir einni hinni frumlægustu og
heilbrigðustu lífsnautn, sem mönnun-
um er gefin, ánægjunni af að neyta
góðs matar í friði.
Tilraunin, sem gerð var með hund-
ana, sýndi það, að geðshræringar
höfðu slæm áhrif á meltingarstarfið,
en hið sama gildir í höfuðatriðum
manninn og æðri dýr. Bylgjuhreyfing-
ar meltingarfæranna eru einnig mjög
háðar hugarástandinu. Læðu var kom-
ið úr jafnvægi, og stöðvuðust þá
bylgjuhreyfingarnar þegar í stað, en
þegar svo var snúið við blaðinu og
hún var strokin og tók til að mala,
komust hreyfingarnar í eðlilegt horf.
. Mörg dæmi eru til um hliðstæð áhrif
og verkanir þeirra. Óttinn hefur
mjög skaðleg áhrif á hreyfingar mag-
ans, og hætta þær alveg, ef hann er á
háu stigi. Óttinn stöðvar einnig starf
magakirtlanna, og eru til góð dæmi
um það. Kona nokkur í Bandaríkjun-
um hafði komið til einnar stórborgar-
innar og gist þar yfir nótt. Morgun-
inn eftir varð hún fyrir alvarlegri
meltingartruflun, og kom þá í ljós, að
magakirtlarnir höfðu hætt að starfa.
Er nánar var grennslazt um hagi henn-
ar, kom það upp úr kafinu, að eigin-
maður hennar, sem einnig var með á