Heimili og skóli - 01.08.1962, Side 10
02
HEIMILI OG SKÓLI
SIGURJÓN BJÖRNSSON:
KYNLIF
í umræðum og skrifum um uppeld-
ismál er stöku sinnum á það minnzt,
að æskilegt væri að fræða börn og
unglinga eitthvað um kynferðislífið.
Þó er tiltölulega hljótt um þau mál,
enda eru þau mörgum all-viðkvæm.
Eftir því sem ég starfa lengur að
málefnum barna og unglinga verður
mér ljósara, að á þessu sviði er t.als-
vert slæmt gat í uppeldisvenjum okk-
ar. Það virðist vera tiltölulega sjald-
gæft, að fullorðið fólk liafi hispurs-
lausa og heilbrio^ða afstöðu til kvnlífs-
ins, og þar af leiðandi mjög sjaldgæft,
að börn geti rætt við foreldra sína eða
kennara um þessi efni. Sú fræðsla, sem
börnum veitist, er mestmegnis fengin
af götunni og eins og verða vill um
slíka fræðslu er hún misjafnlega vel
framreidd. Afleiðing þessa er, að mörg
börn fá snemma mjög brenglaðar,
rangar og ósiðlegar hugmyndir um
kynlífið. Þau fá þá hugmynd, að kyn-
líf sé ljótt og ógeðslegt. í huga margra
er kynlíf sama og klám.
Því verðúr ekki neitað, hverja skoð-
un sem menn hafa á lífi mannsins og
hlutverki hans hér í heimi, að kynlíf-
geri ég ekki oft. Mér þykir þó ástæða
til að vara við hættunni, sem stafar af
ósannindum barna og þá ekki síður
við þeim aðstæðum, sem hrinda þeim
af stað.
Segir Jrú barninu þínu alltaf satt?
H. J. M.
ið er mjög sterkur þáttur í atferli hans
öllu. Og ef svo er litið á, að það sé ljótt
og ógeðslegt, er maðurinn sannarlega
syndum spillt vera, hlaðinn þungri
erfðasynd. Hin þjakandi sektarkennd
sem fylgir svo mörgum, stendur vissu-
lega í beinu sambandi við þá dul og
afneitun, sem hvílir yfir kynferðislíf-
inu. Kynnautnin verður stolin nautn.
Það lilýtur að draga á eftir sér þunga
drögu að afneita jafn sterkum þætti í
sjálfum sér. Það getur ekki leitt til
góðs að halda jafn sterku afli utan við
uppeldið. Til þess að kynhvötin færi
fólki hamingju og blessun, þarf hún
auðvitað að fá sitt uppeldi eins og
önnur öfl í sálarlífi mannsins. Við
þekkjum afleiðingarnar. Fjölda mörg
hjónabönd eru ekki eins farsæl og
vera ætti, vegna þess að kynlíf hjón-
anna er óeðlilega þvingað. Mörg hjón
eiga erfitt með að ræða saman um
þessi mál og þar af leiðandi geta þau
ekki komið sér saman um, hvemig tak-
marka skuli barneignir. Því fylgja
fleiri barnsfæðingar heldur en foreldr-
unum eru kærkomnar og auk þess sí-
felld hræðsla og öryggisleysi.
Eg er heldur ekki í vafa um, að tals-
vert mikið af þeirri lausung, sem gæt-
ir hjá ungum stúlkum og hinn mikli
fjöldi lausaleiksbarna (sem er mikið
uppeldisvandamál, hvað sem öllum
ömmum og öfum líður) á að nokkru
leyti rætur að rekja til þess, að ungar
stúlkur skortir kynferðilegt uppeldi.
Fjölda margar unglingstelpur fara út
|