Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1962, Síða 15

Heimili og skóli - 01.08.1962, Síða 15
HEIMILI OG SKÓLI 67 stýri á fiskibát, flá skinnið af hvaða dýri sem var, verka fisk og síðast en ekki sízt: sofa vært í mjúkum byng af furunálum. Ég þekkti nöfn á öllum trjám, flestum blómum og berjurn og gat á svipstundu sagt til um það, hvort einhver svamptegund var eitruð eða hættulaus. Hann ól mig upp og kenndi mér, eins og þegar barni er kennt að ganga, eða hvolp er kennt að draga sig í hlé fyrir stórum veiðihundum. Hann gaf sjaldan skipanir, en kom oft með tillögur og góð ráð, og allar hans uppeldisaðferðir voru hugsaðar og viturlegar: „Það hefur enginn leyfi til að leika sér fyrr en starfinu er lokið,“ sagði hann til dæmis einu sinni og horfði á mig ströngum augum. En svo bætti o o o hann við nokkuð íbvgginn: „En það Í.S getur enginn bannað okkur að gera starfið að leik, ef okkur tekst það. Það getur engum orðið til meins, að þú hugsir þér, að þú sért gullgrafari í Alaska, þótt sú sért í raun og veru að taka upp kartöflur.“ Ég man glöggt, að hann var einnig vanur að segja: „Drengir eiga helzt að vinna sörnu vinnu og fullorðnir karl- menn — meðal annars af virðingu fyr- ir gigt og þreytu fullorðna fólksins, en einnig vegna þess, að það er gott fyrir drengi að vita, hvað bíður þeirra er fullorðinsárin taka við. Það er gjald- ið, sem hann verður að greiða fyrir að fá að vera drengur.“ Ég vissi aldrei, hvað afi var gamall. Það hvarflaði yfiileitt aldrei að mér, að afi hefði nokkurn sérstakan aldur. Hann hafði gengið með sama böggl- aða hattinn og haft sama rytjulega

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.