Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1962, Blaðsíða 18

Heimili og skóli - 01.08.1962, Blaðsíða 18
70 HEIMILI OG SKÓLI Það er margt, sem ég á afa að þakka, en einna þakklátastur er ég honum fyr- ir það, að hann kom alltaf fram við mig sem jafningja, en aldrei með þeim niðurlægjandi myndugleik, sem allt þykist vita betur. Hann kenndi mér heilbrigðan metnað og sjálfsvirðingu. Hann kenndi mér að vera mannlegur, háttvís og umburðarlyndur. Hann sagði oft, að fengi maður hið rétta uppeldi, þá þyrfti mikið til að spilla drengnum í honum, jafnvel þótt lífið gæfi honum nokkra snoppunga. Dag- inn, sem ég fór á fiskiveiðar á meðan afi var jarðaður, gerði ég mér í raun og veru ekki grein fyrir hvað það var, sem afi hafði látið mér eftir. A pappírnum var það aðeins veiðibyss- an, netin, báturinn og hús, sem ég vissi þó, að ekki myndi verða lengi í minni eigu. — En ég vissi, að það var miklu meira en þetta, sem afi lét mér eftir. Eg lagði út árarnar og reri heim. Þegar ég gekk á land var jarðarförin um garð gengin, en aðeins nokkrir ættingjar og vinir ófarnir. Það leit ekki út fyrir að nokkur hefði saknað mín. Ég ákvað nú að verða rithöfundur og skýra frá öllu því, sem afi hafði kennt mér. En fyrst varð ég að afla mér menntunar og vinna mér inn svo mikla peninga, að ég gæti keypt gamla húsið okkar aftur. — Það tók langan tíma. Fyrst varð ég að ganga í gegnunr heimsstyrjöld og þar á eftir ótryggan frið. Ég ætlaði að skrifa og skrifa, ferðaðist til Washing- ton, New-York, Parísar, Spánar og Afríku. Ég þurfti að kveðja mörgum sinnum og heilsa jafnoft, og fyrstu gráu hárin sáust í vöngunum. En gamla húsið er aftur komið í eigu fjölskyldunnar, endurbætt og nýmál- að, og þrösturinn svngur enn úti í garðinum. Og smátt og smátt hefur mér orðið það ljóst, hver arfur afa rníns í raun og veru var: Gamli maðurinn hafÖi gefið mér allan heiminn. Þýtt. H. J. M. Máttur Iistarinnar Eftir fyrri heimsstyrjöldina voru settar nið- ur fjölmennar blökkumannahersveitir í sum héruð Þýzkalands. Þetta vakti gífurlega gremju meðal þýzku þjóðarinnar. Kvöld eitt stóð blökkumannasöngvarinn Roland Hayes á sviðinu í söngleikahúsi einu í Berlín. Mót- tökurnar voru ekki góðar. Þarna mætti hon- um flóðbylgja af fyrirlitningu og upphróp- unum af verra taginu, svo að það var ekki annað sjáanlegt en að hann neyddist til að hverfa af sviðinu. Roland Hayes fann aftur til djúprar samúðar með þessari stríðsþreyttu og bitru þjóð, svo að hann fór ekki. Næstu tíu mínútur stóð hann með hneigðu höfði fyrir framan leikhúsgestina og beið þess að öldurnar lægði. En þá var eins og hann fengi skyndilega hugboð. — Hann gekk yfir sviðið og settist við hljóðfærið, því næst tók hann að syngja í hálfum hljóðum hið yndislega lag Schuberts „Du bist die Ruh.“ Þetta lag var þó ekki á söngskránni. Þegar fyrstu tónarnir liðu út yfir salinn, brotnaði alda haturs og óvildar á svipstundu. Hayes hélt áfram hrærð- ur í huga, og smátt og smátt varð hann þess var, að hatrið var orðið að engu, en heitar mannlegar tilfinningar umvöfðu hann. „Hjartað hefur sínar ástæður, sem skyn- semin þekkir ekki“, sagði Pascal einhverju sinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.