Heimili og skóli - 01.08.1962, Qupperneq 26
78
HEIMILI OG SKOLI
Sjötugur:
Jóhannes Guémunasson,
kennari
Jóhannes kennari í Húsavík varð
sjötugur 22. júní síðastliðinn. Þótt nú
sé nokkuð liðið frá afmælisdegi hans,
bið ég Heimili og skóla, sem afmælis-
barnið hefur alltaf stutt af ráðum og
dáð, að birta þessa fáorðu kveðju við
fyrsta tækifæri eftir sumarleyfið.
Jóhannes er Keldhverfingur að ætt,
fæddur að Þórólfsstöðum, sem nú eru
komnir í eyði, sonur hjónanna Guð-
mundar bónda þar Pálssonar bónda í
Austurgarði Vigfússonar og konu hans
Sigurveigar Jóhannesdóttur hrepp-
stjóra í Keldunesi Pálssonar. Að hon-
um standa traustir og gáfaðir ættstofn-
ar sem sjá má m. a. af því, að nákomn-
ir ættingjar hans eru þeir Kristján
jónsson Fjallaskáld og hinn víðfrægi
rithöfundur Jón Sveinsson — Nonni.
Jóhannes kennari hefur líka hlotið í
vöggugjöf mörg af hinum glæsilegu
einkennum ættar sinnar. Hann er
hinn mesti skýrleiksmaður, skáldmælt-
ur vel og ritfær, eins og kunugir bezt
vita, og víðlesinn djúphyggjumaður.
En beztu eðliseigindir hans eru þó
tvímælalaust trúmennskan, einlægnin
og hjartahlýjan, sem koma fram í dag-
legum störfum hans og samskiptum
við menn og málleysingja, og baráttu-
vilji hans í þágu góðra málefna og
göfugra hugsjóna. Slíkur maður er
ætíð æskilegur þegn og farsæll fræð-
ari.
Jóhannes Guðmundsson.
Jóhannes kennari lauk gagnfræða-
prófi á Akureyri vorið 1914. Næstu
þrjá vetur var hann kennari í Eyja-
firði og Kelduhverfi. En haustið 1917
varð hann kennari við barna- og ungl-
ingaskólann í Húsavík, og þar hefur
hann starfað óslitið síðan að einu ári
undanskildu, er hann var sjúklingur.