Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1962, Síða 30

Heimili og skóli - 01.08.1962, Síða 30
82 HEIMILI OG SKÓLI Börnin, sem enginn vildi hafa JOHANN OG JUNE ROBBINS (ROTARYAN) Sagan um Bill og Virginíu Newhall og þeirra glæsilega hlutverk sem kjör- foreldrar hófst með átakanlegum sorg- arleik. Síðla sunnudag einn snemma á vorinu 1952 hafði einkasonur þeirra, Martin, átta ára að aldri, farið í skíða- ferð út í hæðirnar, sem lágu umhverfis heimili þeirra. Þegar hann kom heim sagði hann aumkvunarlega: „Ég finn svo mikið til í handleggnum.“ Röntgenmynd gaf til kynna að eitt- hvert æxli þrengdi að olnbogaliðnum. Nánari rannsókn leiddi í ljós, að hér var um krabbamein að ræða. Martin andaðist þremur mánuðum síðar. „Þeir einir, sem misst hafa barnið sitt, vita, hve tómlegt heimilið verður á eftir,“ segir móðir hans. Bergmálið af glöðum hlátrum lifir enn í hinum tómlegu stofum. Jafnvel hundurinn og kötturinn hafa misst matarlystina. Bill Newhall hafði alizt upp á barnaheimili. Hann vissi því að alltaf voru til mörg börn, sem þörfnuðust góðs heimilis. Konan hans hafði misst fóstur oftar en einu sinni, þau gerðu sér því enga von um að eignast fleiri börn. Þau sneru sér því til yfirmanns barnaverndarstarfsins og tilkynntu honum, að þau vildu gjarnan taka kjörbarn. En þau fengu sama svar og þúsundir annarra foreldra höfðu áður fengið undir svipuðum kringumstæð- um: Þau voru orðin 45 ára og því of gömul til að taka kjörbarn, auk þess þóttu tekjur þeirra of lágar. „En við getum útvegað ykkur nokk- ur fósturbörn,“ sagði formaðurinn. A næstu mánuðum tóku Newhallshjón- in svo nokkur börn í fóstur um lengri eða skemmri tíma og aftur bergmál- aði heimili þeirra af glöðum barna- hlátrum og barnahjali. En þeim var þetta ekki nóg. „Við þráðum stöðugt barn, sem við mættum kalla okkar barn,“ segir frú Newhall. Svo var það dag nokkurn árið 1955, að Newhall las um bónda einn, sem hafði beitt sér fyrir því, að nokkur foreldralaus börn voru flutt frá Kóreu og voru komin flugleiðis vestur um haf. Þar hafði hann fundið þeim kjör- foreldra. Þarna var líka tilgreint ákveðið barnaheimili í Seoul. Þetta sama kvöld skirfaði Virginía N ewhall bréf. Það hófst á þessum orð- um: „Við erum heiðarleg, miðaldra hjón, sem eigum engin börn . ...“ Forstöðumaður kóreanska barnaheim- ilisins svaraði skjótlega, að þau gætu fengið 8 ára dreng að kjörsyni, sem héti Kim, ef amerísk yfirvöld sam- þykktu það. Það kom hjónunum raun- ar á óvart að stjórnvöldin veittu leyf- ið. Þó vöktu þau athygli hjónanna á því, að enginn vissi neitt um þennan dreng, hvorki ætt hans, gáfur né líkam- legt atgerfi. „Það var auðséð, að þeir

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.