Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1962, Qupperneq 37

Heimili og skóli - 01.08.1962, Qupperneq 37
HEIMILI OG SKÓLI 89 ÓLAFUR GUNNARSSON: VélvæSing síSustu tíma og álirif liennar á atvinnulíf, s kóla og starfsfræáslu Útdráttur úr framsöguerindum, sem haldin voru á námsskeiði starfs- fræðslustjóra í Sigtúnum í Svíþjóð dagana 21.—30. ágúst 1961. Fyrsta dag námsskeiðsins voru flutt íjögur framsöguerindi um aðalmálefni námsskeiðsins. Voru frummælendur Matts Bergom Larsson, framkvæmda- stjóri, Bertil Olsson aðalframkvæmda- stjóri, N. G. Rosén aðalfræðslustjóri, Wolmar Mattlar starfsfræðslustjóri og Per Watsson, verkfræðingur. Per Watsson gerði stutta grein fyrir tækniþróun allt frá aukinni vélvæð- ingu innan gamla iðnaðarins yfir í liina fullkomnu sjálfvirkni. Matts Larsson benti á, hversu gífur- leg bylting hefði orðið í verksmiðju- iðnaðinum, þar sem sjálfvirkni hefði nú losað starfsfólkið við að beita kröft- um þannig að hvert starf á því sviði væri nú eins vel hægt að vinna af kvenfólki og karlmönnum. Raunar var það nokkurt áhyggjuefni hinum sænsku fyrirlesurum yfirleitt, hversu hægt gengi að fá kvenfólkið út í verk- smiðjuiðnaðinn. Töldu þeir, að vinnu- kraftur kvenna á þessu sviði í Svíþjóð yrði reiknaður í prómillum en t. d. í Sovétríkjunum væru 50% verksmiðju- fólks konur og 20% verkfræðinga. Eitt af því jákvæða, sem fylgir vélvæðing- unni taldi Larsson vera, að fólk, sem ekki hefði nema lítið brot af starfs- orku sinni við venjuleg störf, gæti gert 100% gagn, þar sem vélarnar sæju um erfiðið, en mannshugurinn stjórnaði þeim. Larsson taldi, að það, sem hlyti að fylgja af vélvæðingunni í skólamálum, væri í fyrsta lagi betri undirstöðu- menntun. í öðru lagi þyrfti að mennta 15—20% nemenda með sjálfvirkni fyr- ir augum. í þriðja lagi að sérnrennta marga á vinnustöðunum sjálfum. í fjórða lagi verður fólkið í framtíðinni að vera viðbúið endurþjálfun. fSbr. starfsmenn flugfélaga, sem sí og æ verða að læra að stjórna, líta eftir og gera við nýjar tegundir flugvéla.) Rosén aðalfræðslumálastjóri sagði, að skólinn yrði fyrst og fremst að búa æskuna undir það atvinnulíf, sem hennar biði, en það væri oft nokkuð erfitt fyrir skólana að gera sér grein fyrir hvers væri að vænta í framtíð-

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.