Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1962, Page 39

Heimili og skóli - 01.08.1962, Page 39
HEIMILI OG SKÓLI 91 verk 600.000 manns eða eins margra og þeirra, sem vinna í öllum sænskum iðnaði til samans, hefði verið á einum stað, hefði flutningskostnaðurinn orð- ið meiri heldur en næmi þeim auka- kostnaði, sem leiddi af því að skipta verksmiðjunni í fernt. Evrópa stendur sérstaklega vel að vígi hvað flutninga snertir vegna flóa, fjarða og fljóta. Enginn staður í Evrópu er meira en 500 kílómetra frá hafi eða fljótshöfn. Flutningar sjóveg eru mun ódýrari en flutningar á veg- um eða með járnbrautarlestum. Ef dreginn væri hringur með 500 kílómetra radius frá bænum Ostende í Belgíu sem miðdepli, fengjum við svæði með 70% af iðnaði Evrópu inn- an þessa hrings. Sölu- og flutnings- kostnaður þess, sem notað er innan þessa hrings verður sáralítill ef borið er saman við sölukostnað á strjálbýl- um stöðum. Kopparbergssýslan í Sví- þjóð með 300.000 íb.úum er t. d. jafn- stór allri Belgíu. Á íslandi er strjál- býlið þó enn þá meira. Dreifing vör- unnar verður því mjög dýr hér í sam- anburði við þéttbýlli lönd. Fyrirlesarinn rakti síðan éfnahags- þróunina í Evrópu síðan seinrii heims- styrjöldinni lauk. Marshallhjálpin, sem veitt var fyrir milligöngu OEEC, veitti fjölda Evrópubúa mikla þjálfun í sanr- skiptum margra þjóða. Um 1952 taldi Pauer að Evrópu- þjóðirnar hafi haft á að skipa a. m. k. 50.000 þjálfuðum mönnurn á því sviði, og það gerði alla samninga mun auð- veldari en ella. Þar eð fyrirlesarinn gerði ráð fyrir að öll Evrópa myndi smám saman sam- einast í eina efnahagslega heild, ræddi hann aðallega um hvers Evrópa sem slík mætti sín. Þessi hluti heimsálfunn- ar ræður yfir 40% af verzlun allra jarðarbúa og 60% af verzlun með iðn- aðarvörur. Evrópumarkaðurinn ræður yfir 55—60% af iðnaði Evrópu, en á þessu svæði eru 12% þjóðanna raun- verulega atvinnulausir í sveitunum. Þessi tala er þannig fengin, að Pauer gerir ráð fyrir, að með því að nota ný- tízkuaðferðir í landbúnaði þurfi ekki nema 8% þjóðanna til þess að fram- leiða matvæli, en í Vestur-Evrópu stunda 20% þessa atvinnu. I Svíþjóð 13%, þar hafa yfirvöldin unnið að því að fá bændur til að leggja í eyði kot- jarðir á afskekktum stöðum, en rækta skóg í staðinn. í Noregi er tilsvarandi tala 17.18%, í Finnlandi 25%, en í Englandi aðeins 4%, þannig að EFTA- löndin hafa til samans aðeins 8%, sem stunda landbúnað. Pauer benti á, að bæði í Svíþjóð og Bandaríkjunum væri sjáLfsafgreiðslu- fyrirkomulagið nú komið á það stig, að þar gætu menn nú keypt varahluti í bíla á þennan hátt. Hins vegar væru þrjár þjóðir í Evrópu utan við bæði Márkaðsbandalagið og EFTA svo fá- tækar og vanþróaðar, að þær yrðu Lrin- um þjóðunum nokkurt vandamál. Þetta væru Spánverjar, íslendingar og Tyrkir. (Að fyrirlestrinum loknum ræddi ég all lengi við fyrirlesarann um það á hverju hann byggði það álit sitt, að íslendingar væru vanþróaðir. Sagð- ist hann hafa gert það á þeim forsend- um, að við flyttum svo að segja ekkert út nema fiskafurðir og þjóð, sem þannig væri ástatt með væri í efna-

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.