Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1962, Blaðsíða 41

Heimili og skóli - 01.08.1962, Blaðsíða 41
HEIMILI OG SKÖLI 93 þrjái- meginkröfur til nýtingar vinnu- afls: 1) Flytja vinnuafl landfræðilega. 2) Flytja vinnuafl milli starfsgreina. 3) Flytja fjármagn. í sumum löndum er naumast urn annað vinnuafl að ræða, sem ekki hef- ur verið nýtt en giftar konur. Hvar er þeirra að leita og hvernig á að tryggja þjóðfélaginu vinnuafl þeirra? Giftar konur eru þar, sem giftir menn eru. Þær fara ekki frá heimili og börnum til þess að stunda einhverja at vinnu eins og karlmenn geta gert. í Stokkhólmi eru um það bil 40% giftra kvenna vinnandi utan heimilis. Gert er ráð fyrir, að ekki komi til greina að meir en 50% giftra kvenna geti unnið utan heimilis, hinn helm- ingurinn sé bundinn við móðurskyld- ur eða önnur skyldustörf á heimilum, sem ekki sé hægt að yfirgefa. Bertil Olsson taldi, að unnt ætti að vera að láta 1% af vinnuaflinu skipta unr vinnu árlega, án þess að til vand- ræða komi. í Svíþjóð munu nú um hálft % skipta um vinnu á ári hverju. Bertil Olsson benti á, að æ fleiri myndu þurfa á allgóðri sérmenntun að halda. Sem dæmi nefndi hann, að æ fleiri yrðu að vinna á teiknistofum, rannsóknarstofum, verkfræðingadeild- um, áætlunardeildum og söludeildum. Alls konar þjónusta eykst, en verkum unnum með höndum fækkar. Frítím- um fjölgar og tómstundir hafa æ meira gildi fyrir mannkynið og því mikils um vert að þeim tómstundum sé vel varið. Loks ræddi forstjórinn nokkuð um mál vinnufatlaðra og sagði, að þjóð- félagið yrði að láta þetta fólk fá verk- efni við sitt hæfi, annars væri ekki um gemýtingu vinnuafls að ræða. Velferð- arríkin mega ekki gleyma skyldum sínum við þá, sem verst eru á vegi staddir, og þeim verður bezt hjálpað með því, að hjálpin sé hjálp til sjálfs- hjálpar. Forstjóri Félagsmálastofnunarinnar dönsku og formaður í vísinda- og tækninefnd OECD, Henning Friis, ræddi um „Menntun í sambandi við tækniþróun.“ Önnur hlið allrar menntunar er að varðveita þá menningu, sem myndazt hefur. Hin hliðin er að stuðla að breytingum og framþróun. Oftast er skólinn íhaldssamur og fylgist illa með tímanum. Þess vegna hefur framþró- unin aldrei spírað innan veggja skól- anna. Enn hefur ekki orðið veruleg breyting í þessu efni. Tæknifræðsla skólanna er langt á eftir því, sem þjóð- félögin þarfnast. Áður fyrr var aðalhlutverk skólanna trúarlegs og félagslegs eðlis. Öll verk- kennsla fór fram á heimilum, verk- stæðum og öðrum vinnustöðum. Enn þann dag í dag er allt annað nám en tæknilegt aðalatriði í skólum. Allir eru sammála um, að human- istisku fögin hljóti alltaf að fá allmik- ið rúm í skólum. Jafnvel sölumaður- inn, sem getur talað um Shakespeare, Goethe, Sarte og Proust, stendur bet- ur að vígi í matarboðum sumra fyrir- tækja en félagi hans, sem ekki þekkir neitt til þessara manna. Undirbúningsmenntun, þ. e. barna- og unglingaskólamenntun, þarf að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.