Heimili og skóli


Heimili og skóli - 01.08.1962, Side 42

Heimili og skóli - 01.08.1962, Side 42
94 HEIMILI OG SKÓLI veita meiri möguleika til þess að menn geti skipt um störf síðar á ævinni en nú gerist. Með öðrum orðum, hún þarf að veita hagnýtari þekkingu um fleira raunhæft en nú gerist auk hinnar al- mennu menntunar. Það þýðir að fleira óraunhæft verður að hverfa. Þetta er hið eilífa endurmat á, hvað er gagn- legt í skólanámi og hvað ekki. Sérhæfing í námi má ekki koma of snemma, en þegar hún kemur, verður hún að stefna að einhverju ákveðnu marki. Um fagmenntun má deila. Sumar þjóðir, t. d. Danir og íslendingar, hafa langa iðnmenntun og litla möguleika til að skipta um. í Svíþjóð, Bandaríkj- unum og Englandi er fagmenntunin styttri og möguleikarnir til að fara t. d. úr einu iðnstarfi í annað nreiri. Þessu fylgir meiri tilflutningur milli staða, þar sem iðnaðarmenn elta oft bezt launuðu starfsgreinarnar. Þetta er ekki aðeins faglegt spursmál, held- ur einnig siðfræðilegt. Menn verða að gera upp við sig, hvað þeir vilja helzt. Allir verða að gera ráð fyrir endur- þjálfun einhvem tíma á ævinni, eink- um konur, sem hverfa úr atvinnulíf- inu 10—15 ár, meðan á barneignum og ungbarnauppeldi stendur. Einar Thorsrud dósent við Tækni- háskólann í Þrándheimi hélt erindi um „Verkfræðistörf og tækniháskóla á starfsbreytingatímum." Einar Thorserud brá upp smámynd af prófessor, sem hættir störfum 1961, og þeim, sem er nýtekinn við starfi. Eftirlaunaprófessorinn er alinn upp í háskólaumhverfi fyrir fyrri heims- styrjöldina, þegar allt gekk hægt og rólega, og háskólakennarinn hafði auk þess að fylgjast með því litla, sem nýtt var í hans fagi, góðan tíma til að fylgj- ast með ýmsu, sem gerðist í öðrum fræðigreinum. Sama máli gegndi um stúdentana. Þeir gátu vel tekið þátt í félags- og menningarlífi eftir því sem efnahagur þeirra leyfði, án þess að vera lengur við nám en hóflegt þótti. Prófessorinn, sem nú er nýtekinn við starfi, er jafnan með heilan hóp af sérfræðingum í kringum sig. Hann ræður yfir allmiklu fé, sem gerir hon- um kleift að fylgjast með í sínu fagi. Til þess að geta það, þarf hann aðstoð launaðra aðstoðarmanna og stúdenta. Hann virðist sí og æ vera á ferðinni frá morgni til kvölds. Frá kennslu- stund á stjórnarfund. Alltaf er eitthvað að gerast í sambandi við aðalstarf hans, kennslu í tæknilegum efnum. Af erindi Einars Thorseruds var ljóst, að Norðmenn gera ráð fyrir geysilegri fjölgun verkfræðinga á næstu árum og þó verður erfitt að tækni- mennta eins marga menn og þörf er fyrir og raunar ekki hægt í landinu sjálfu. Allmikill fjöldi norskra stú- denta verður að læra erlendis vegna þrengsla í norskum háskólum. Fjölbreytnin í háskólanámi taldi Einar Thorsrud að yrði slík á næstu árum, að háskólarnir yrðu að sjá stú- dentum fyrir umfangsmikilli náms- fræðslu, ef þeir ættu ekki að verða átta- villtir í því mikla bákni sem nútíma tækniháskóli væri á góðri leið með að verða. Aðrir þættir erindis Thorsruds snertu einkum verkfræðinga og fyrir-

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.