Heimili og skóli - 01.08.1962, Page 48
100
HEIMILI OG SKÓLI
Frá Fræðsluráði Isafjarðar
Sökum alvarlegs kennaraskorts við
Barnaskóla ísafjarðar og Gagnfræða-
skólann á ísafirði samþykkti bæjar-
stjórn ísafjarðar 14. þ. m. samhljóða
að greiða öllum kennurum téðra skóla
staðaruppbót næsta skólaár. Auka-
greiðslur þessar eru kr. 750.00 til hvers
kennara á starfsmánuð, — þ. e. í 9
mánuði, eða til hvers kennara kr.
6.750.00 yfir skólaárið. — Enn eru
nokkrar stöður lausar við ísfirzku
skólana.
Samþykkt bæjarstjórnarinnar í þessu
efni er byggð á samhljóða ósk fræðslu-
ráðsins á ísafirði, en á fundi þess 13.
þ. m. var samþ. svohljóðandi tillaga
með atkv. allra fræðsluráðsmanna:
„Þar sem barnskólinn hefur undan-
farið búið við svo alvarlegan kennara-
skort, að ekki hefur tekizt, — þrátt
fyrir mikla aukavinnu kennaranna —,
að halda uppi lögboðinni fræðslu sam-
kvæmt námsskrá, og þar sem enn hef-
ur engin umsókn borizt um auglýstar
kennarastöðum við skólann, svo og
með tilvísun til þess að allar líkur
benda til að enn þá alvarlegra vanda-
mál í þessum efnum sé að skapast í
Gagnfræðaskólanum verði ekkert að-
hafzt í málinu, samþykkir fræðsluráð-
ið að beina þeirri ákveðnu ósk til bæj-
arstjórnar ísafjarðar, að samþykkt
verði að bæjarsjóður greiði kennurum
téðra skóla staðaruppbót á laun skóla-
árið 1962—1963, sem hér segir:
a) Skólastjóra barnaskólans kr.
1000.00 pr. starfsmánuð.
b) Kennurum skólanna kr. 750.00
pr. starfsmánuð.
Greiðslur þessar miðist við fullt
kennslustarf. Þeir kennarar, sem ekki
gegna fullu starfi fái staðaruppbætur í
hlutfalli við starf sitt.
í sambandi við ofanritaða samþykkt
vill fræðsluráðið minna á, að á sl.
sumri barst engin umsókn um stöðu
skólastjóra Gagnfræðaskólans fyrr en
bæjarstjórnin samþykkti að greiða
skólastjóranum launauppbætur, — en
þá bárust fimm umsóknir enda þótt
umsóknarfresturinn væri þá aðeins fá-
einir dagar.“
Enn fremur samþykkti fræðsluráð
ísafjarðar samhljóða eftirfarandi til-
lögu á fundi sínum 13. ágúst sl.:
„í tilefni af hinum alvarlega kenn-
araskorti beinir fræðsluráð ísafjarðar
þeim ákveðnu kröfum til ríkisvaldsins,
að launakjör kennara verði sem allra
fyrst hækkuð svo verulega, að kennara-
starfið verði eftirsótt og þannig á raun-
hæfan og varanlegan hátt ráðin bót á
því ófremdarástandi, sem nú ríkir í
þessum efnum.
Jafnframt vill fræðsluráðið vekja
athygli allra hlutaðeigandi aðilja á því,
að það telur að ekki verði hjá því kom-
izt að greiða staðauppbætur til kenn-
ara úti á landi, og minnir í því sam-
bandi á launagreiðslufyrirkomulag
varðandi héraðslækna."