Heimili og skóli - 01.08.1962, Síða 50
102
HEIMILI OG SKÓLI
Bækur og rit
Lesum og lærum
Svo nefnist lítil og falleg lestrarbók fyrir
byrjendur, sem Ríkisútgáfa námsbóka hefur
sent frá sér. Bókin er tekin saman af kenn-
urunum Ásgeiri Guðmundssyni og Páli Guð-
mundssyni, en Halldór Pétursson hefur teikn-
að myndir í bókina, sem allt eru litmyndir,
listrænar og skemmtilegar eins og vænta
mátti. Bók þessi mun ætluð börnum, sem
farið hafa yfir Gagn og gaman. Efni hennar
er tekið úr daglega lifinu og er skemmtilega
farið með það og við barna hæfi. En það,
sem gefur efninu gildi og líf, eru hinar ágætu
myndir, sem prýða bókina. Þetta er tvímæla-
laust vandaðasta lestrarbókin, að ytra frá-
gangi, sem Ríkisútgáfa námsbóka hefur gefið
út. Bókin er 63 blaðsíður að stærð.
Það, sem sérkennilegt er við þessa lestrar-
bók er það, að henni fylgir vinnubók, sem
börnunum er ætlað að eiga og vinna að í
sambandi við lestur bókarinnar og er eins
konar átthagafræðibók. Einstök atriði í lestr-
arbókinni eru tekin til meðferðar í vinnu-
bókinni og gerð þar betri skil með teikning-
um og skýringum.
Ég held að það sé óhætt að fullyrða, að
þetta er fengur fyrir kennara að fá þessar
bækur, og hafi höfundar og útgefandi þökk
fyrir.
H. J. M.
Skólaskýrsla bama- og gagnfræða-
skóla Reykjavíkur
Heimili og skóla hefur borizt skýrsla um
starfsemi barna- og gagnfræðaskóla Reykja-
víkur skólaárið 1960—1961 og er það allfróð-
legt rit, 67 blaðsíður að stærð í stóru broti.
Það er tekið saman af fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur. Fyrst er skýrt frá skólum borg-
arinnar, stjórn þeirra, skólastjórum og kenn-
araliði. Barnaskólar eru 11, en gagnfræða-
skólar 8, þá er sagt frá kennsluhúsnæði og fer
það vaxandi og batnandi. Fastir kennarar við
barnaskólana alla munu vera 225.
Þá eru þarna birt prófverkefni beggja
skólaflokkanna, bæði barnapróf og unglinga-
próf. Þá eru birtar fréttir frá hverjum ein-
stökum skóla og er sá þáttur hinn fróðlegasti.
Loks er svo skýrt frá einstökum þáttum skóla-
starfsins, sem ekki fellur beint inn í ramma
hins venjulega starfs. Má þar t. d. nefna
eftirlit með kennslu treggáfaðra barna, um-
ferðakennslu, skólaþroskapróf, sálfræðideild
skóla, ýmis námskeið o. fl. o. fl.
Fræðslustjóri Reykjavíkur er Jónas B. Jóns-
son, en formaður fræðsluráðs Helgi H. Ei-
ríksson, fyrrv. skólastjóri.
Blik,
Ársrit Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum.
Þetta myndarlega rit barst Heimili og skóla
fyrir skömmu og hefur það aldrei verið
stærra né fjölbreyttara. Að þessu sinni er það
hvorki meira né minna en rúmar 350 blað-
síður. Það lætur því að líkum, að ekki er
hægt að geta efnis þess nema að litlu leyti.
þarna eru margar veigamiklar og fróðlegar
greinar, en ritið hefst á grein eftir ritstjór-
ann, Þorstein Víglundsson, skólastjóra, sem
hann nefnir Hugveltju og fjallar einkum um
áfengismál og viðhorf æskunnar til þeirra
mála. Þá er löng og merkileg grein, sem nefn-
ist Saga Bnkasafns Vestmannaeyja eftir Har-
ald Guðnason. Þá kemur framhald greinar-
innar Saga barnafraðslunnar í Vestmanna-
eyjum, eftir ritstjórann. Henni fylgir kenn-
aratal frá 1885—1904. Þá er grein um Bún-
aðarskólann á Stend eftir ritstjórann og grein
sem nefnist Ofanbyggjarar á fyrstu árum 20.
aldarinnar eftir Friðfinn Finnsson. Þá er
grein um knattspyrnufélagið Tý 40 ára með
mörgum myndum. Þá er skólaskýrsla, þáttur
nemenda og margt fleira. Ritið er prýtt fjölda
mynda. Rit þetta er merkilegt framlag til
sögu Vestmannaeyja og skólanum til sóma.
H. J. M.
Norsk pædagogisk tidsskrift
Fyrir skömmu er komið út stórmyndarlegt
hefti af Norsk pædagogisk tidsskrift, sem