Læknaneminn


Læknaneminn - 01.07.1967, Side 30

Læknaneminn - 01.07.1967, Side 30
30 LÆKNANEMINN skólans eða eiga þær aðeins að vera fáar áfram? íslendingar hljóta að taka tillit til þeirra rann- sókna sem gerðar eru með þðrum þjóðum. Það er ólíklegt. að íslend- ingar geti bætt nokkru við í grein- um sem eru dýrar og þegar mikið kannaðar af stærri þjóðum. Þetta á t.d. við um eðlisfræði og stjörnu- fræði. En það eru ýmsar aðrar greinir sem liggja sérlega vel við Islendingum og skipta okkur miklu. Hér á ég við greinar eins og jarðfræði, haffræði og erfðafræði. Það virðist einsætt að á slíkar greinar beri að leggja sérstaka áherzlu. Sennilega mætti með góð- um árangri hafa þrjá flokka kennsluverkefna við Hl. Islending- ar munu áfram þurfa að mennta lækna, lögfræðinga og verkfræð- inga. Slíkar greinar mynduðu hinn fyrsta flokk og væri unnt að Ijúka almennu námi í þeim hér heima. Aðrar greinar eins og t.d. stærðfræði, lífeðlisfræði eða dýra- fræði væri unnt að nema hér heima að nokkru. Þannig gætu greinar í fyrsta flokknum myndað e.k. kjarna en kennsla við þær væri einnig fyrir fólk sem færi að lok- um í aðrar greinar. Þannig gæti t.d. fyrri hluti læknisfræði orðið undirstöðunám fyrir væntanlega lífefna- eða eðlisfræðinga, sem síð- an lykju námi sínu erlendis. Loks væri við HÍ þriðji flokkur náms- greina, en það væru greinar sem á einhvern hátt hefðu sérstöðu fyrir ísland. 1 þessum greinum væru reknar vandaðar vísindaleg- ar rannsóknir og kennsla öll og aðbúnaður deildanna þannig að þar gætu Islendingar orðið kenn- arar annarra þjóða. 1 þennan flokk kæmu m.a. jarðfræði, haf- fræði, erfðafræði og norræn fræði svo nokkur séu nefnd. Við skulum gera ráð fyrir að meginstefna Hl verði í samræmi við það sem að ofan er ritað og athuga læknadeild dálítið nánar. Læknisfræði er eðli sínu sam- kvæmt hagnýt vísindi. I lækna- deild ber því réttilega að leggja áherzlu á hvernig niðurstöður grundvallargreina eru hagnýttar í klínik. En eftir sem áður byggist læknisfræði á fræðilegum vísind- um sem forsendu, og kennsla í þeim er þess vegna fyrsta verk- efni læknadeildar. Að þessu fyrsta verkefni leystu er síðara verkefnið að sýna nemendum hvernig flytja megi hina fræðilegu þekkingu yfir á raunveruleikann eða með öðrum orðum hvernig fræðileg vísindi eru hagnýtt klíniskt. Góður læknir verður að vera mjög hæfur við bæði þessi verkefni eins og þau birtast honum persónulega í starfi hans. Hver læknir þarf að fylgjast með framþróun þeirra fræðilegu greina, sem hann byggir starf sitt á, og auk þess verður hann að hafa augun opin fyrir nýjum möguleik- um til hagnýtingar fræðilegrar þekkingar. Hver læknir þarf þann- ig að hafa sjálfur einhvern neista af því báli sem er aflgjafi vísinda- mannsins, hann þarf að vera brot af vísindamanni sjálfur. Eina hugsanlega leiðin til að ná slíku marki er að kennarar hinna verð- andi lækna séu sjálfir vísinda- menn. Aðeins þeir menn sem sjálf- ir eru í önnum að færa út landa- merki sinnar greinar, eru til þess fallnir að innræta ungum mönnum það hugarfar, sem ætti að einkenna góða háskóladeild. Þess vegna er nauðsynlegt að efla vísindalegar rannsóknir í öllum þeim greinum læknisfræðinnar, sem kenndar eru í læknadeild. Slík vísindaleg efling er raunhæft skref til að bæta kennslu og í rauninni forsenda annarra umbóta.

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.