Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1974, Síða 9

Læknaneminn - 01.11.1974, Síða 9
menntaðs læknis, eru aðalatriðin jafnan eftir. Efteir er að ryðja úr vegi óhemju mörgum vandamálum, sem eru algjörlega ólæknisfræðileg, áður en hægt er að útskrifa sjúklinginn.“ Crockett tekur nokkur dæmi. Kona er innlögð vegna vannæringar. Nágranni hennar, sem annaðist tnnkaup fyrir hana, lærbrotnaði. Læknisfræðilega vandamálið er auðleyst, en . . . Sjúklingur er lagður inn vegna rugls, sem orsakaðist af alvarlegri hægða- tregðu. Læknisfræðilega auðleyst en húsráðandi vill ekki fá viðkomandi aftur vegna óþrifnaðar. Sjúkl- ingur er lagður inn vegna helftarlömunar, en nær aftur talsverðri gönguhæfni. En heima hjá honum er baðið og svefnherbergið á efri hæðinni og sal- ernið í kjallaranum. Fleiri dæmi tekur Crockett. Af þessum ástæðum sé það líkt og að ætla að reyna að klaupa í kviksandi að stunda öldrunarlækningar. „Við skulum ekki látast halda, að öldrunarlækn- ingar felist bara í að beita nýtízku læknisfræði á gamla fólkið“, heldur Crockett áfram. „Öldrunar- lækningar fjalla um ósjálfráð þvag- og saurlát, rugl, iegusár, gamlar konur, sem ekki vilja fara heim, af því að þeim er heilt á spitalanum en kalt heima, ein- manaleik, einangrun, óhrein gleraugu, heyrnarhjálp fyrir eyru full af skít, dekur við félagsmálastofnanir, húsráðendur og aðrar hjálparstofnanir. Þær fjalla um hina vonlausu baráttu við elli- og hrörnunar- sjúkdóma, um það að mala til eilífðarnóns um sjúk- dómsgreininguna, sem kollegar þínir misstu af og fleira í þessum dúr.“ Að lokum spyr Crockett, hvort öldrunarlækningar séu ekki prump (phoney) sérgrein, stofnuð til að létta af almennum lyflæknum erfiðum sjúklingum, sem ekki svara meðferð eins fljótt og hinir yngri, stífla rúmin og trufla stofuganginn með kveinstöfum sínum. liOleaorð Það, sem hér hefur verið rakið, ætti að geta orðið mönnum nokkurt umhugsunarefni. Flestir, sem kynnst hafa spítalastörfum, munu kannast vel við vandamál lík þeim, sem Crockett nefnir. Flestum er líka að verða ljóst, að stærstu vandamál læknisfræð- innar í þróuðum ríkjum, eru vandamál króniskra sjúkdóma og hás aldurs. Læknamenntun og heil- brigðisþj ónusta hafa enn lítið breyst til samræmis við það. Síðustu aldir hefur læknisfræðin nær ein- göngu miðað að því að skilja manninn æ fínni skilningi: kerfið, líffærið, fruman, mólekúlið. Þessi stefna er orðin svo dýr, að hún mun, ef áfram verð- ur eins haldið, ríða okkur að fullu fjárhagslega. Ár- angurinn hins vegar virðist óra fjarri því að svara öllum tilkostnaðinum. I heild má segja, að öll áhersla bafi verið lögð á að „lækna“ (cure), en um- hyggjuna (care) hafi skort. I framtíðinni verður þetta að breytast. Við verð- um umfram allt að halda í hina áttina - sjá vanda- málin í víðara samhengi: einstaklingurinn, fjölskyld- an, samfélagið og umhverfið. í læknanáminu verða lrinar klassísku grunngreinar í ríkara mæli að víkja fyrir félagslegum greinum. Nú dugir ekki lengur að fæla húmanistana burtu og gera hina að „organist- um“. Ef læknisfræðin ætlar í framtíðinni að ná nokkrum umtalsverðum árangri, verður hún að leggja meiri áherslu á umhyggjuna. Það sést best af vandamálum aldraðra. Að lokum vil ég benda áhugasömum á mjög vand- aða nýútkomna bók: Textbook of Geriatrics and Gerontology, ritstýrt af Brocklehurst. Bókin er til á bókasafni Landsspítalans. /. T. læknaneminn 7

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.