Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1974, Page 45

Læknaneminn - 01.11.1974, Page 45
handritaskrár Landsbókasafns giskar á, sést á því að sóttin sem leiðbeiningarnar fjalla um hófst í Reykj avík. I ferðabók Sveins Pálssonar lýsir hann faraldri sem 1791 gekk á Vesturlandi og segir svo frá för sinni að Olvaldsstöðum í Mýrasýslu 26. ágúst „til að rannsaka banvænan sjúkdóm, sem komið hafði upp fyrir skemmstu á bæ þessum og hafði drepið 5 manns á hálfum mánuði. Nokkru áður höfðu borist fregnir um bráða og mannskæða sótt vestur í Idelga- fellssveit, að því er hermt var. Veiktust menn með áköfu taki í lungum, og á nálægt mánaðartíma dóu yfir 100 manns þar í sveitinni, flestir á þriðja og fjórða degi eftir að þeir veiktust. Þá er einnig sagt, að eftir andlátið rynni blóð úr líkunum.“ - „Þegar ég kom á bæinn, hitti ég þar 4 menn, sem voru í aft- urbata. Báru þeir allir glögg merki mislinga, sem borist höfðu frá Kaupmannahöfn. Um það sann- færðist ég, þegar ég heyrði, að bóndinn Rúnólfur að nafni, og annar maður úr nágrenninu höfðu dvalist nokkrar nætur úti í skipi Einars Þórólfssonar lausa- kaupmanns. Á skipinu var háseti, Jón að nafni, sem legið hafði í mislingum og verið sjúklingur minn í Kaupmannahöfn í apríl síðastliðnum. Þessir tveir áðurnefndu menn höfðu haldið sig mest að þessum landa sínum og fengið lánuð föt af honum, því að kalt var í veðri. Fötin tók hann upp úr kistu sinni, og þar hafa þau sennilega verið látin óhreinsuð. Báðir mennirnir sýktust mjög bráðlega, annar dó, en hinn hélt lífi. Enn má geta þess, að sagt er að maður á þessu sama skipi hafi dáið úr mislingum og verið grafinn á Akranesi. Áðurnefndir batasjúkling- ar voru: 1) Hálffullorðinn piltur, Bjarni að nafni. Hann veiktist, að sögn, með höfuðverk og köldu- hrolli. Skömmu síðar fékk hann ákaft tak (pleuris) í vinstri síðu. Þar á eftir fylgcli hósti með miklum uppgangi, einkum á nóttunni. Hann lá viku, en hafði nú verið 5 eða 6 daga á flakki. Á honum sáust enn greinilegir rauðbrúnir flekkir í andliti. Auk þeso var hann með hósta og mjög hás. — 2) Tvær stúlkur á fimmtugsaldri, sem voru komnar á fætur fyrir tveimur dögum, þjáðust af andþrengslum, hósta og hæsi.“ — ,,3) Fjögra ára gamalt barn, hafði legið í hálfan mánuð þjáningarlaust, og enginn útsláttur sést. Nú var það aðeins lystarlaust og þoldi illa, að á því væri snert. Þrír þeirra, er létust, þjáðust mjög af ákafri taksótt 2-4 daga, áður en þeir önduðust. Fjórði þeirra, sem var kona, veiktist fyrst af þyngsl- um og lystarleysi, síðan fékk hún höfuðverk og sár- an sting til skiptis undir síðurnar. Að 4—5 dögum liðnum komu flekkir á háls og brjóst, en þeim sló inn, og lést hún síðan á tíunda degi. Mislingafaraldur þessi hefur eigi alls staðar kom- ið greinilega fram og oft líkst bólgusótt, og hygg ég það stafi af meðfæddu blóðríki í þjóðinni - „---og fólk það, er dó, lifði það ekki, að misling- arnir kæmu út, en fram að þeim tíma er erfitt að þekkja þá. Þeir, sem batnað hefur, hafa flestir farið of snemma á fætur, ofkælst og mislingarnir ekki komið greinilega út á þeim. Uppköst er eina sjúk- dómseinkennið, sem ég hef ekki fundið hjá nokkrum manni. Eg þori ekki að fullyrða, að sótt sú, er geis- aði á Vesturlandi, hafi verið mislingar. Jón land- læknir Sveinsson, sem Olafur stiftamtmaður skipaði að fara vestur í embættisnafni, segist við heimkomu sína engin merki hafa fundið, er staðfesti þessa til- gátu. Þegar hann kom vestur, hafði sjúkdómurinn fjarað út að fullu. Þess er heldur ekki getið, að aðrir haíi sýkst af veiki þeirri, er gekk á Olvaldsstöðum, en örfáir menn á nágrannabæjunum, sem hjálpuðu til að sinna um lík þeirra, er dóu. En ætli að misl- ingasóttin sé nú í raun og veru svo smitnæm, að veð- urbreyting frá röku þokulofti til hins hreina, veðra- sama, kalda lofts fái eigi stöðvað hana, einkum í landi, þar sem svo er strjálbýlt, að bæjarleiðirnar eru jafnvel svo mílum skiptir á lengd? Og getur það ekki einnig verið, að kvefsótt sú, Febris catharralis, sem um sama leyti gekk á Suðvesturlandi og oft fylgdi rauður útsláttur, hafi einmitt verið reglulegir mislingar, sem af einhverjum ókunnum orsökum hafa tekið myndbreytingu? Að minnsta kosti er mér kunnugt um, að þeir menn, sem sýktust af kvefsótt þessari, smituðust ekki af mislingunum.“ (9, 15- 17). Sveinn mun tæpast sannfæra nokkurn nútíma lækni um að hér hafi verið um mislinga að ræða, frekar en Jón Sveinsson gat staðfest að svo væri. Og ekki fær skoðun Sveins neinn stuðning af því, sem hann segir um faraldur þann, sem hófst í júlí 1792 í Reykjavík, nefnilega: „í byrjun mánaðarins tók hinn svonefndi Vesturlandssjúkdómur að geisa og var svo skæður að í Reykjavík og nágrenni hennar læknaneminn 33

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.