Læknaneminn - 01.04.2004, Síða 21

Læknaneminn - 01.04.2004, Síða 21
með áhugaverð einkenni. Einn velviljaður og greiðvikinn sérfræð- ingur fók upp á því óumbeðinn að lesa yfir alla journalana mína og skila þeim íhólfið mitt með athugasemdum. Enda erjournala- tæknin orðin fínpússuð eftir sumarið, kann ég honum miklar þakk- ir fyrir (ætli fyrstu journalarnir mínir hafi verið svona lélegir!?). í fyrstu var ferlega stressandi að vera með akútpípið. Þó maður vissi að allur herinn kæmi þjótandi ef á þyrfti, þá var alltaf sá mögu- leiki að ég yrði fyrst á staðinn og þyrfti að gera eitthvað af viti. í fyrsta skiptið sem akútpípið lét f sér heyra lá við stórslysi er ég hennti frá mér möppu, vasaljósi og reflex hamar og hljóp af stað upp á sjöundu hæð frá bráðamóttökunni. Er upp var komið var ég í nærri þvíjafnslæmu ástandi og sjúklingurinn (nú skil ég af hverju það er ekki þverfótað fyrir læknum ÍWorld Class). Sú endurlífgun tókst ekki, það er greinilega ekkert einsdæmi því ég hef enn ekki séð árangursríka endurlífgun og hef ég séð þó nokkrar. ACLS - kennarar sögðu ekkert um þetta, hmmm... Er á leið sumarið fór að halla undan fæti mönnunarlega séð og í ágúst var ástandið orðið skelfilegt. Allir deildarlæknar í sumarfríi og sérfræðingar orðnir hundleiðir á að taka deildarlæknisvakt- ir. Oft vantaði einhvern á aðra deildariæknisvaktina (einn í stað tveggja), einnig voru margir nemanna farnir til sólarlanda og meira vaktaálag á hinum sem eftir voru. Nú vorum við nemarnir orðin vinnuhæf og mér fannst hreint út sagt eins og það hafi gleymst að við vorum enn fjórðaársnemar. Bakkuppið var orðið lélegra og mér fannst stundum of mikil ábyrgð á veikum herðum. Þó lagt væri upp í sumarið með glæsibrag og góðu prógrammi þá datt botninn úr því sfðustu tvær til þrjár vikurnar. Þetta er atriði sem sviðsstjórar medicin verða að bæta fyrir komandi sumur. Sumarið mitt á medicin var viðburðarríkt og lærdómsríkt. í byrjun sumars var stressið í hámarki og fannst mér oft leiðinlegt hvað ég kunni í raun lítið í læknisfræði. Oft fannst mér eins og mér hefði verið hent út í djúpu laugina með hálfuppblásinn kút. Ég þurfti svo sannarlega á aðstoð að halda en hún var auðfengin. Kennslan var frábær og aldrei hef ég lært jafn mikið ájafnskömm- um tíma. Þessi reynsla hefur gagnast mér í því námi sem tók við og efast ég ekki um að hún á eftir að gera lesturinn á sjötta ári auðveldari. Ég get hiklaust mælt með medicin-sumri fyrir alla þá sem vilja mikla vinnu og öðlast reynslu með því að sjá marga sjúk- linga á skömmum tíma. Dögg Hauksdóttir, 5. árs iæknanemi. Svipmyndir m- L Æ:k!M I í • é'.J W ■ % "•A' Lj 21
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.