Læknaneminn - 01.04.2004, Blaðsíða 17
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur
08.00-09.00 08.00-09.00 08.00-09.00 08.00-09.00 08.00-09.00
Læknaráðsfundur Pappírsvinna Kennsla Pappírsvinna Pappírsvinna
09.00-12.00 09.00-12.00 09.00-12.00 09.00-12.00 09.00-12.00
Sjúklingamóttaka Sjúklingamóttaka Sjúklingamóttaka, Sjúklingamóttaka Sjúklingamóttaka
myndbandsgátun
12.00-13.40
Fræðslufundur
12.30-16.00 13.20-16.00 13.20-16.00 12.00-16.00 13.20-16.00
Sameiginleg Sjúklingamóttaka Sjúklingamóttaka Sjálfsmenntun Sjúklingamóttaka
kennsla/fyrirlestrar Board spurningar
08.00-09.00 08.00-09.00 08.00-09.00 08.00-09.00 08.00-09.00
Læknaráðsfundur Balint Nótnafundur Pappírsvinna Pappírsvinna
09.00-12.00 09.00-12.00 09.00-12.00 09.00-12.00 09.00-12.00
Sjúklingamóttaka Sjúklingamóttaka Sjúklingamóttaka, Sjúklingamóttaka Sjúklingamóttaka
myndbandsgátun
12.00-13.40
Fræðslufundur
13.20-16.00 13.20-16.00 13.20-16.00 12.00-16.00 13.20-16.00
Sjúklingamóttaka Fyrirlestrar Sjúklingamóttaka Sjúklingamóttaka Sjálfsmenntun Board spurningar Sjúklingamóttaka
16.00-17.00 16.00-17.00 16.15-17.00 16.00-17.00
Pappírsvinna Pappírsvinna Tilfellafundur Pappírsvinna
með tilliti til þessara þarfa þar sem gert er ráð fyrir hálfu ári í
vali á námstímanum.
Starfsþjálfun á heilsugæslustöðvum/heilbrigðisstofnunum
beinist að því að námslæknirinn öðlist ákveðna færni, svo sem
í viðtalstækní, að setja upp lykkju eða að sauma sár. Aðalþætt-
ir fræðilega hlutans beinast hins vegar að kunnáttu og viðhorf-
um. Kunnáttan getur til dæmis verið fólgin í því að læra að
afla sér og nýta nýjustu þekkingu í meðferð á háþrýstingi eða
tíðahvörfum. Síðarnefnda markmiðið, viðhorfin, skiptir þó sköp-
um fyrir heímilislækningar. Hér er t.d. átt við að námslæknirinn
stefni að því að verða sérfræðingur í eínstaklingnum sjálfum,
en ekki líffærum eða ákveðnu aldursskeiði, að læknirinn noti
tímann sem tæki tíl greiningar vandamála og öðlist heildarsýn
á einstaklingnum sem félagsveru, hluta af fjölskyldu, samfélagi
eða umhverfi.
Þegar starfsþjálfun fer fram á sjúkrahúsum halda námslækn-
ar tengslum við heilsugæsluna og taka á móti sjúklingum hálf-
an dag í senn tvísvar í mánuði, auk þess sem þeir funda með
leiðbeinendum sínum.
Fræðileg kennsla
Það er hluti af starfsskyldum námslæknis að taka þátt í
fræðilegu námi af ýmsu tagi, minnst 100 klst. á ári.
Hópnám fer þannig fram að námslæknar hittast einn
eftirmiðdag tvisvar í mánuði þar sem þeír ræða ákveðín víð-
fangsefni. Val viðfangsefna fer eftir marklýsíngu og óskum
námslækna í samráði við kennslustjóra. Hver læknir verður að
undirbúa sig fyrir þessa tíma til að geta verið virkur í umræð-
unni. Leiðbeinandí er námslæknum ínnan handar við efnistök
og aðstoðar við val á greinum og stýrir umræðum um efnið. í
sumum tilfellum eru sérfræðingar úr öðrum sérgreinum fengn-
ir til aðstoðar.
Fræðslufundir. Námslækni er ætlað að taka þátt í fræðslu-
dagskrá sem boðið er upp á á viðkomandi heilsugæslustöð
eða sjúkrahúsi, en slíkir fræðslufundir eru að jafnaði einu sinni
á viku.
Formleg kennsla. Námslæknir sækir formlega kennslu á
heilsugæslustöðvum en hún fer fram á flestum stöðvum einu
sinni í viku. Þar tekur námslæknirinn virkan þátt í kennslunni.
Fyrirlestrar. Námslæknir flytur reglulega fyrirlestra fyrir
starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar og einnig fyrir aðra náms-
lækna í hópnáminu. Fyrir þá sem vilja er boðið upp á kennslu
í framsetningu og flutningi erinda. í lok námsins eiga náms-
læknar að hafa náð góðum tökum á undirbúningi og flutningi
fyrirlestra.
Fræðileg ritrýni. Á námstímanum eiga námslæknarað lesa
yfir JAMA greinasafnið „User's guide to the medical literature“
og lesa og kynna greinar reglulega. Markmiðið er að náms-
læknir geti á gagnrýninn og skipulegan hátt metið rannsóknir,
skilið niðurstöður og áttað sig á hvort niðurstöður rannsókna
eigi við sinn sjúklingahóp.
Balint fundir eru tvisvar í mánuði 2 klst. í senn. Á þessum
17