Læknaneminn - 01.04.2004, Blaðsíða 81
Eru kverkeitlar uppeldisstöðvar fyrir húðsæknar T-eitilfrumur
sem orsaka psoriasis?
Helga Margrét Skúladóttir
Leiðbeinendur:
Jóhann Elí Guðjónssonl, Hekla Sigmundsdóttirl, Hannes
Petersen2, Helgi Valdimarssonl.
Rannsóknarstofa í ónæmisfræði LHS1, Háls-, nef- oq eyrnadeild
LHS2.
Inngangur: Psoriasis er T-frumu miðlaður húðsjúkdómur og
nýlegar rannsóknir benda til þess að CD8+ T-frumur gegni
þar stóru hlutverki. Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna
tíðni húðsækinna T-eitilfruma í kverkeitlum (tonsils) og blóði
psoriasissjúklinga og bera saman við samanburðarhóp sem
ekki hafði psoriasis.
Efniviður og aðferóir: Tekin voru vefjasýni úr kverkeitlum
og blóðsýni úr 9 psoriasis-sjúklingum sem voru með
skellupsoriasis (chronic plaque psoriasis) og höfðu sögu
um dropapsoriasis köst (guttate psoriasis) og/eða versnun
eftir hálsbólgur. Eitilfrumur voru einangraðar og undirflokkur
T-fruma greindur í frumuflæðisjá (FACS) eftir litun með
flúrskinsmerktum einstofna mótefnum gegn ákveðnum
húðsæknisameindum, þ.á.m. cutaneous lymphocyte antigen
(CLA). Samanburðarhópur var fenginn úr fyrri rannsókn á
kverkeitlum sjúklinga sem gengist höfðu undir kverkeitlanám
vegna endurtekinna sýkinga.
Tölfræðilegur samanburður var gerður með „Students t- test”
og Pearsons fylgniprófi.
Niðurstöóur: I Ijós kom sterk fylgni milli tíðni CLA+CD8+
T-fruma í blóði og kverkeitlum psoriasissjúklinga (p=0,0021,
r=0,868). Hins vegar var ekki fylgni milli CLA+CD4+ T-fruma
í blóði og kverkeitlum, ólíkt því sem sást hjá samanburðar-
hópnum. Meira reyndist vera af CLA+CD8+ T frumum í blóði
hjá psoriasissjúklíngum en samanburðarhópnum (p<0.0001).
Hins vegar var tíðni CLA+CD8+ fruma í kverkeitlum
psoriasissjúklinga ekki meiri en hjá samanburðarhópnum.
Eínnig reyndust psoriasissjúklingar hafa hærri tíðni af CCR5
jákvæðum T-frumum, bæði í kverkeitlum og blóði (p<0.0001),
en þessi svipgerð er talin einkenna Th1 frumur sem gegna
lykilhlutverki í myndun psoriasis útbrota.
Ályktun: Pessarniðurstöðursamræmast rannsóknartilgátunni,
einkum hvað varðar CD8+ T-frumur.
Lykioró: psoriasis, kverkeitlar, húðsæknisameindir.