Læknaneminn - 01.04.2004, Page 25

Læknaneminn - 01.04.2004, Page 25
þvagflæði. Ef ákveðið er að lúta þvagið þá er það afar auðvelt. Bæta má 100-150 mmólum af natríumbíkarbónati í 1 lítra af 5% glúkósa og gefa 150-200 ml/klst. Miða skal að því að halda pH gildi þvags hærra en 7,07. Stundum getur þurft að gefa þvagræsilyf til að koma í veg fyrir ofhleðslu vökva og er þá t.d. hægt að gefa 20-100 mg af fúrósemíði á 6-8 klst fresti. Meðan á krabbameinslyfjameðferðinni stendur er ráðlegt að fylgjast náið með þvagútskilnaði og vökvainntöku (vökvaskrá). Forðast skal að nota þvaglegg vegna sýkingarhættu. Fyrstu dagana getur þurft að mæla natríum, kalíum, kreatínín, kalsíum og fosfat á 8-12 klst fresti. Eftir 2-3 daga má mæla þessi efni sjaldnar ef klínískt ástand er stöðugt. Þvagsýru og LDH er rétt að mæla daglega. 2. Meðferð nýrnabilunar Þegaræxlisrofsheilkennihefurleitttilnýrnabilunarerusjúklingar yfirleitt lífshættulega veikir og þarfnast gjörgæslumeðferðar. Reyna skal vökvagjöf í þeim tilgangi að koma af stað þvagútskilnaði. Einnig má reyna gjöf fúrósemíðs til að auka þvagflæði. Takmarka skal fosfat í fæðu (600-900 mg/d) og nota fosfatbindandi lyf, t.d. álhýdroxíð (50 mg/kg á 8 klst fresti með máltíðum). Svæsin hyperkalemia er að venju meðhöndluð með glúkósa og insúlíni í æð (50 ml af 50% glúkósa og 10 einingar af hraðvirku insúlíni (Actrapid®) gefið á 5 mínútum), natríumbíkarbónati í æð (1 mmól/kg, fylgt á eftir með dreypi), jónabindandi resíni (natríumpólýstýrensúlfónat (Resonium®), 15-50 g um munn) og jafnvel blóðskilun. Einnig er ráðlegt að gefa kalsíum í æð ef um er að ræða takt- eða leiðslutruflanir í hjarta (10% kalsíumglúkónat, 10-30 ml á 15-20 mín). Venjulega skyldi þó ekki gefa þessum sjúklingum kalsíum í æð nema þeir hafi svæsna hyperkalemiu eða einkenni vegna hypocalcemiu því ógætileg gjöf á kalsíum getur aukið hættu á útfellingum kalsíumfosfats. Hætta skal gjöf lyfja sem hafa neikvæð áhrif á nýrnastarfsemi ef mögulegt er. Einnig skal hætta gjöf lyfja sem geta hækkað kalíum, t.d. ACE- hemla, bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) og kalíumsparandi þvagræsilyfja. Oft getur gjöf fúrósemíðs aukið útskilnað á kalíum ef umtalsverður þvagútskilnaður er enn fyrir hendi. Ef ekki tekst að koma á viðunandi þvagflæði þá er oft gagnlegt að hefja blóðskilunarmeðferð snemma, einkum þegar brátt þvagsýrunýrnamein er meginorsök nýrnabilunar. Blóðskilun er virk aðferð til að fjarlægja þvagsýru úr blóði og er mögulegt að samfara lækkun á blóðþéttni þvagsýru niður fyrir 600 ixmól/l verði bati á nýrnastarfsemi. Alltaf skal hafa nýrnalækna með í ráðum við meðhöndlun bráðrar nýrnabilunar af völdum æxlisrofsheilkennis. Bráð vandamál tengd taugakerfi Þrýstingur á mænu vegna æxlisvaxtar Þrýstingur á mænu og taugarætur vegna æxlisvaxtar er fylgikvilli sem sést hjá u.þ.b. 5% allra krabbameinssjúklinga og líklegt er að nýgengi muni fara vaxandi vegna betri krabba- meinsmeðferðar og bættrar lifunar27-28. Iðulega eru einkennin hratt versnandi og ef þessir sjúklingar eru ekki greindir og meðhöndlaðir skjótt, þá hljóta þeir varanlegan skaða sem er líklegur til að skerða lífsgæði þeirra og lífslíkur verulega29. Oftast er um að ræða meinvörp utan basts (epidural space), yfirleitt í hryggjarliðum. Einnig geta meinvörpin verið innan basts (subdural space), í taugarótum og innan í mænu (intra- medullary). Þá getur þrýstingur á bláæðar í grennd við mænu valdið hækkaðum þrýstingi í bláæðakerfinu sem leiðir til bjúgs í mænunni. Nær öll krabbamein geta valdið þessu ástandi en algengust eru brjóstakrabbamein, lungnakrabbamein, krabba- mein í blöðruhálskirtli, eitilfrumuæxli og mergæxli. Oftast eru þessi meinvörp í brjósthrygg (allt að 50-60%), þar næst í lendhrygg (25-30%) en sjaldnast í hálshrygg (10-15%). Allt að 20% sjúklinga hafa fleiri en eitt greinanlegt meinvarp í hryggnum30. Einkenni og teikn Verkur í baki er fyrsta einkennið hjá meira en 95% sjúklinga. Oft hefur verkurinn verið til staðar í margar vikur og jafnvel mánuði. Gjarnan er verkurinn verri ef sjúklingur er útafliggjandi og minnkar oft við að ganga um. Bakverk sem plagar sjúkl- inga um nætur skal alltaf taka alvarlega en óvenjulegt er fyrir sjúklinga með önnur bakvandamál, t.d. brjósklos og slitgigt, að hafa næturverk. Góð þumalfingursregla er að allir krabba- meinssjúklingar með bakverk eru með hryggjarmeinvörp uns annað sannast. Stöku sinnum er bakverkurinn fyrsta einkennið um illkynja sjúkdóm. Síðar fylgir oft rótarverkur sem hefur ákveðna útbreiðslu eftir því hvaða taugarót æxlið þrýstir á. Þegar æxlið fer að þrýsta á mænuna lýsir það sér með dofa og máttleysi í ganglimum. Þegar slík einkenni koma fram er gangurinn yfirleitt hraður og oft verður alger lömun innan nokkurra klukkustunda eða daga. Þegar svo svæsin einkenni eru komin fram eru batahorfur yfirleitt litlar. Oft er sagt að gangi sjúklingurinn inn á spítalann þá muni hann ganga út, en komi hann á börum eða í hjólastól þá yfirgefi hann spítalann á sama máta. Einkenni frá ósjálfráða taugakerfinu eru algeng, einkum raskanir á þvaglátum eða hægðalosun. Stöku sinnum er slingur (ataxia) eina eða mest áberandi einkennið og skýrist það væntanlega af þrýstingi á spinocerebellar brautir31. Við skoðun á hrygg geta fundist staðbundin eymsli. Einnig þarf að gera ítarlega skoðun á taugakerfi, þar sem leitað er eftir brottfallseinkennum. Bankdeyfa ofan lífbeins gefur vísbendingu um þvagteppu vegna blöðrulömunar. Sérstaklega skal vanda til endaþarmsskoðunar og meta samdráttargetu hringvöðvans og skyn í kringum endaþarmsopið. Allt of oft er þeim þætti sleppt og getur það leitt til seinkunar á greiningu og óafturkræfs skaða. Rannsóknir Ef grunur vaknar um þrýsting æxlis á mænu er mikilvægast að fá strax segulómun (mynd 1). Þegar um er að ræða sjúkling með brottfallseinkenni þá má engin töf verða ef koma á í veg fyrir algera lömun. í slíkum tilfellum er sjálfsagt 25

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.