Læknaneminn - 01.04.2004, Síða 28
BRÁÐIR FYLGIKVILLARILLKYNJA SJÚKDÓMA,
4. Skurðaðgerð
Stundum er mögulegt að fjarlægja meinvörp með skurðaðgerð,
sérstaklega ef um er að ræða eitt eða tvö meinvörp38. Því
er ráðlegt að leita álits heilaskurðlæknis í slíkum tilfellum.
Ef skurðaðgerð tekst er oft beðið með geislameðferð en
vitaskuld má búast við endurkomu sjúkdómsins í heila síðar.
Almennt ástand sjúklings og útbreiðsla krabbameinsins skiptir
miklu máli við val meðferðar í slíkum tilfellum.
5. Krabbameinslyfjameðferð
Yfirleitt er sagt að krabbameínslyf fari lítið yfir blóð-
heilaþröskuld. Talið er að krabbamein rjúfi oft þennan þröskuld
og því getur krabbameinslyfjameðferð komið til greina sem
aðalmeðferð í stöku tílfellum heilameinvarpa37'38. Það á einkum
við um eitilfrumukrabbamein og aðra sjúkdóma sem svara vel
lyfjameðferð, t.d. smáfrumukrabbamein upprunnið í lunga38.
Horfur
Án meðferðar deyja þessir sjúklingar á nokkrum mánuðum.
Geíslameðferð og skurðaðgerðir geta lengt líftíma og bætt
lífsgæði umtalsvert.
Bráð vandamál tengd hjarta og blóðrás
Heilkenni lokunar á efri holæð (superior vena cava syndrome)
Þetta heilkenni er fremur sjaldgæft en það hrjáir allt að
4% sjúklinga með lungnakrabbamein sem er talið valda
um 65% tilfella3. Samkvæmt hefð er yfirleitt rætt um þetta
heilkenni sem brátt vandamál en í raun er bráðleiki minni
en ýmissa annarra vandamála sem rætt er um þessari
grein. Þetta er mikilvægt að vita, því tími gefst venjulega
til vefjagreíningar ef um nýuppgötvað krabbamein er að
ræða. Eítilfrumuæxli, æxli í miðmæti og brjóstakrabbamein
eru einnig vel þekktir orsakavaldar. Ákveðnir góðkynja
sjúkdómar, t.d. bandvefsmyndandi bólgusjúkdómur í miðmæti
(fibrosing mediastinitis), ósæðargúll í brjóstholi, bláæðasegar,
skjaldkirtilsstækkun (retrosternal goiter) og sumar sveppa-
sýkingar geta einnig valdíð þessu heílkenní.1,3’44 Pá eru segar
í efri holæð vaxandi vandamál í tengslum við aukna notkun
lyfjabrunna og annarra miðbláæðaleggja46. Einkennin eru fyrst
og fremst vegna þrýstings á efri holæð sem er þunnveggja og
leggst auðveldlega saman með þeim afleiðingum að aukinn
þrýstingur myndast í bláæðakerfinu ofan við stífluna44.
Einkenni og teikn
Yfirleitt byrja einkennin hægt og sígandi og má því segja að
hér sé ekki um eiginlegt bráðavandamál að ræða. Algengustu
eínkennin eru mæði sem oft er áreynslubundin, hósti, hæsi,
höfuðverkur, svimatilfinning og sjóntruflanir. Við skoðun er oft
að finna þandar bláæðar á hálsi, roða og jafnvel bláma í andliti,
og bjúg í andliti og á handleggjum.
Rannsóknir
Flestir þessarra sjúklinga hafa afbrigðilega lungnamynd þar
sem teikn um æxli er að finna hægra megin í brjóstholi.
Tölvusneiðmyndataka af brjóstholi er afar gagnleg rannsókn
til að greina þetta vandamál en stöku sinnum þarf að beita
bláæðamyndatöku eða segulómun. Ef ekki er um að ræða
þekkt krabbamein, er nauðsynlegt að taka sýni úr æxlinu og
getur meðferð yfirleitt beðið uns vefjagreíning liggur fyrir.
Meðferð
Val meðferðar byggist fyrst og fremst á tegund krabbameins.
Stundum geta sterar linað einkennin með því að draga
úr aðlægri bólgu og bjúg. Engar góðar rannsóknir á
nytsemí stera hafa þó verið gerðar46,47. Geisla- og/eða
krabbameinslyfjameðferð er hjálpleg í mörgum tilfellum.
Isetning stoðnets í æðaþrengsli getur verið gagnleg til að
draga úr eínkennum48. Gagnsemi blóðþynnandi lyfja er óljós
en vera má að þau komi að gagni eftir ísetningu stoðnets47.
Ef um sega er að ræða er rétt að íhuga segaleysandi meðferð
með eða án blóðþynningarmeðferðar í kjölfarið. Loks gæti
fyrirbyggjandi örblóðþynning (1 mg af warfaríni á dag) fyrir-
byggt segamyndun þegar miðbláæðaleggur er til staðar49.
Gollurshússvökvi (perícardial effusion and cardiac
tamponade)
Gollurshússvökvi fínnst hjá allt að 15% krabbameinssjúklinga
og getur verið fyrsta merkið um hinn illkynja sjúkdóm50.
Krabbamein eru talin valdaalltað 6%tilfellaaf gollurshússvökva
og um 20% tilfella þar sem um er að ræða mikinn vökva. Ef
vökvamyndun er hröð getur vökvasafníð þrýst á hjartað og
hinar þunnveggja bláæðar og valdið pericardial tamponade en
það getur verið lífshættulegt ástand50'52. Alla jafna er þetta þó
ekki mjög brátt vandamál. Nauðsynlegt er að þekkja til helstu
einkenna tamponade og vita hvernig best er að nálgast slíka
sjúklínga. Velflest krabbamein geta valdið þessu vandamáli
en algengust eru lungnakrabbameín og brjóstakrabbamein60.
Eitilfrumukrabbamein, hvítblæði og sortuæxli eru einnig vel
þekktar orsakir.
Einkenni og teikn
Fyrstu einkennin eru yfirleitt frekar ósértæk, vaxandi mæði,
óþægindi fyrir brjósti og hósti. Við skoðun er oft að fínna þandar
hálsæðar, hraðan hjartslátt, daufa hjartatóna, þverstæðupúls
(pulsus paradoxus; a.m.k. 10 mm Hg fall á slagbilsþrýstingi við
innöndun) og Kussmauls teikn (aukin þensla á hálsæðum við
innöndun).
Rannsóknir
Lungnamynd sýnir yfirleitt stækkaðan hjartaskugga og á
hjartarafriti finnst stundum electric alternans (mynd 3) en þá
eru QRS-útslögin misstór og er það talið orsakast af því að
hjartað sveiflast til inni í hinu vökvafyllta gollurshúsi. Ef grunur
vaknar um gollurshúsvökva og tamponade skal alltaf gera
hjartaómun svo fljótt sem auðið er.
28-Læknaneminn 2004