Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 17

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 17
17 sem það hefur áhuga á, eins og að fara í lengri gönguferðir, golf, eða að veiða. Mikilvægt er að láta sjúkdóminn ekki trufla sig of mikið heldur reyna eins og hægt er að halda áfram daglegum störfum. Oft á tíðum hóstar fólk með lungnatrefjun sem getur verið óþægilegt í margmenni. Lífstíll sem stuðlar að betri líðan Hægt er að gera margt til þess að láta sér líða betur þegar maður hefur greinst með lungnatrefjun. Að sjálfsögðu er mikilvægt að hætta alveg reykingum. Þá er mikilvægt að hreyfa sig reglulega. Einnig er regluleg slökun og að forðast streituaðstæður mikilvægt. Það er gott að vera með gott svefnmynstur og fá nægilega langan svefn. Mikilvægt er að borða reglulega til þess að ekki verði of mikið þyngdartap. Heilbrigt fæði getur falist í meiri neyslu á ávöxtum og grænmeti en einnig kjöti og mjólkurvöru og að forðast sykraða drykki og drekka meira af vatni. Þá er oft gott að borða oftar í einu og minna og að vera alltaf með lítinn nestisbita með sér ef farið er út af heimili í meira en tvær klukkustundir. Það er ákaflega mikilvægt fyrir alla með lungnatrefjun að fá bólusetningar, einkum gegn COVID, inflúensu og lungnabólgubakteríum. Mikilvægt er að ræða við fjölskyldu og vini eftir að maður hefur greinst með lungnatrefjun. Það getur verið erfitt að tala um þetta af því það getur verið erfitt að skilja sjúkdóminn og hann er ekki það algengur, eða umtalaður að margir þekki hann og vita því ekki hvernig hann hegðar sér. Í slíkum tilvikum koma upp margar spurningar og gott að skrifa þær hjá sér og spyrja lækni sinn ráða. Mikilvægt að fylgjast með einkennum Hjá sumum einstaklingum með lungnatrefjun versna einkenni með tímanum og það er mikilvægt að segja lækni og öðrum heilbrigðisstarfsmönnum skilmerkilega frá því þegar komið er í viðtöl, eða talað í síma. Það á sérstaklega við um að mæði aukist og verði við minni áreynslu en áður. Einnig getur hósti versnað, þreyta aukist og þyngdartap sömuleiðis. Stundum getur verið gott að halda dagbók og jafnvel að vigta sig til þess að átta sig betur á þessu. Ef framþróun verður á sjúkdómnum þannig að einkenni versni, er mjög einstaklingsbundið hvernig það gerist. Hjá sumum stendur sjúkdómurinn í stað svo mánuðum og árum skiptir en hjá öðrum verður gangurinn hraðari. Til er að fólk fái það sem kallað er bráð versnun. Þá geta öll einkenni versnað á mjög stuttum tíma, jafnvel á viku, eða minna og ástand orðið þannig að nauðsynlegt sé að leggjast inn á sjúkrahús. Aðrir sjúkdómar sem tengjast lungnatrefjun Margir aðrir sjúkdómar tengjast lungnatrefjun. Sem dæmi um það er vélindabakflæði og mikilvægt að láta heilbrigðisstarfsmann vita af því. Stundum er gefin lyfjameðferð við því. Fólk getur verið með blandaða mynd lungnatrefjunar og langvinnrar lungnateppu. Þá er kæfisvefn algengur og margir eru einnig með kransæðasjúkdóm og sykursýki. Að búa við lungnatrefjun getur haft mikil áhrif á andlega heilsu. Sjúklingar hafa áhyggjur af því að verði framþróun á sjúkdómi og það verði erfitt að anda og komi til súrefnisgjafar. Mikilvægt er að tala um þetta við bæði heilbrigðisstarfsfólk og vini og ættingja og leita aðstoðar eftir því sem þarf. Lungnasamtökin veita góðan stuðning í slíkum tilfellum. Mikilvægt er að halda jákvæðu hugarfari og það má gera með því að vera duglegur að tala um eigin tilfinningar, fá góðan svefn og borða hollan mat oft á dag. Einnig hjálpar að vera reglulega í líkamsþjálfun en ekki gleyma því að gera það sem manni finnst skemmtilegt og jafnvel að taka upp ný áhugamál ef þau sem fyrir voru er ekki hægt að stunda lengur vegna sjúkdómsins. Þá er slökun afskaplega mikilvæg. Meðferð Meðferð við lungnatrefjun getur beinst að undirliggjandi sjúkdómum, einkum ef um er að ræða gigtsjúkdóma eins og iktsýki eða herslismein. Þá eru stundum gefin ónæmisbælandi lyf. Frá árinu 2014 hafa verið tvö lyf á markaði sem eru til þess að draga úr bandvefsmyndun. Þau heita Pirferidone og Nintedanib. Þau eru gefin ýmist tvisvar eða þrisvar á dag. Þessi lyf geta hægt á framþróun sjúkdómsins, minnkað líkur á bráðum versnunum og lækkað dánartíðni vegna sjúkdómsins. Þessi lyf hafa aukaverkanir, einkum frá meltingarvegi, þannig að fólk getur fengið kviðverki, niðurgang, ógleði og uppköst. Í slíkum tilfellum er hægt að aðlaga skammtastærðir af lyfjunum og einnig að gefa lyf sem draga úr þessum einkennum. Ef sjúkdómurinn er lengra genginn er gefið súrefni, ýmist að næturlagi og við áreynslu, eða allan sólarhringinn, nema þegar verið er í hvíld heima. Lungnaendurhæfing er ákaflega mikilvæg og getur haft margvísleg góð áhrif í þessum sjúkdómi. Í mjög fáum tilvikum er gerð lungnaígræðsla við lungnatrefjun. Þetta er einkum ef sjúkdómurinn versnar hratt og kemst á mjög alvarlegt stig þannig að lífsgæði verði mjög takmörkuð. Til þess að geta farið í lungnaígræðslu þarf viðkomandi að vera mjög hraustur að öðru leyti, því að það má í raun ekki vera neitt annað að, sérstaklega ekki kransæðasjúkdómar eða annað slíkt. Stundum gengur sjúkdómurinn áfram með auknum einkennum og þá er valin líknandi meðferð sem getur verið fólgin í sérhæfðri lyfjagjöf sem hefur líknandi áhrif og einnig að leggjast inn á líknardeild ef ekki er hægt að vera heima.

x

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga
https://timarit.is/publication/1564

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.