Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 10

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 10
10 Öndun er okkur eðlislæg: anda inn – og svo út. Virðist ekki ýkja flókið. Það er samt hægt að huga betur að því hvernig við berum okkur að þegar við fáum súrefni inn í líkamann í gegnum lungun. Hér eru nokkur góð ráð til þess að virkja lungun sem best. Notaðu nefið Við öndum annars vegar inn um munninn og hins vegar nefið. Mun betra er að anda inn um nefið þar sem nasirnar sía, hita og rakametta loftið sem munnurinn getur ekki gert. Stundum getur þó verið nauðsynlegt að nota munninn ef súrefnismagn sem næst í gegnum nefið dugar ekki, t.d. við mikla hreyfingu, eða þega stíflur hindra innöndun um nefgöngin. Og magann Menn eru „magaandarar" og rétt fyrir ofan magann er stór og mikilvægur vöðvi kallaður þind. Rétt öndun byrjar í nefinu og færist síðan niður í magann þegar þindin dregst saman. Þá blæs maginn út og lungun fyllast af lofti. Þetta er skilvirkasta leiðin til að anda, þar sem það þrýstir á lungun og skapar neikvæðan þrýsting í brjósti sem leiðir til þess að loft flæðir inn í lungun. Æfðu rétta öndun, sérstaklega ef þú ert lungnasjúklingur Þeir sem hafa langvinnan lungnasjúkdóm, svo sem astma eða langvinna lungnateppu, þurfa almennt meiri orku til að anda. Öndun í gegnum nefið og með maganum er því sérstaklega mikilvæg fyrir þessa einstaklinga. Algengt er að fólk sem þarf að leggja harðar að sér við öndun noti aðra vöðva, t.d. í hálsi, herðum og bringu. Slíkt skilar litlum árangri og getur valdið vöðvabólgu með óæskilegum aukaverkunum. Við útöndun er gott að anda út um munninn og mynda mótþrýsting, með því að þrýsta vörunum saman en það er mjög góð tækni fyrir sjúklinga með langvinna lungnateppu. Viðhaltu heilbrigðum lífstíl Regluleg hreyfing er góð fyrir lungun og hollt, skynsamlegt mataræði stuðlar að aukinni virkni fólks. Best er að forðast stórar máltíðir og matvæli sem valda uppþembu, til að koma í veg fyrir að kviðurinn takmarki hreyfingu þindarinnar. Slökunaræfingar henta lungnasjúklingum líka sérlega vel til að koma í veg fyrir oföndun. Gott er að fylgjast með loftgæðum og forðast að vera útsett fyrir óþægilegri, eða ertandi mengun sem getur haft áhrif á öndun. Oft er nauðsynlegt að nota lyf til að halda öndunarvegi í nefi opnum. Slíkt skal þó gert í samráði við lækni þar sem ofnotkun getur valdið öðrum og jafnvel verri afleiðingum. Jafnframt er mælt með að fá árlega flensusprautu þegar hún er í boði. Ef þú tekur aðeins of vel á! Ef tekið er aðeins of vel á og mæðin verður of mikil er gott að halla sér fram á handrið eða stólbak á meðan verið er að jafna sig. Þannig opnast vel fyrir lungun og hvorki maginn né handleggirnir hindra hámarks loftskipti. Forðastu sýkingar Mikilvægt er að forðast sýkingar af hvers konar völdum. Smitleiðir eru margar en hægt er að minnka áhættuna með því að forðast margmenni og að snerta hluti sem aðrir snerta, þvo hendur oft með sápu, hafa spritt innan seilingar og vera skynsamur. Einnig er mikilvægt að þiggja bólusetningar við flensu, lungnabólgu (Pneumokokkabakteríu) og Covid 19. Hafðu það einfalt Líkamanum er það eðlislægt að anda og hann kann það. Þess vegna er engin þörf á að ofhugsa öndunina. Öndunarfærin vita nákvæmlega hvenær á að segja til um að mál sé komið til að breyta öndunardýptinni í tengslum við virkni og súrefnismettun. Í líkama okkar eru viðtakar sem fylgjast stöðugt með súrefnis- og sýrustigum blóðsins og senda sjálfkrafa merki til heilans um hversu oft og djúpt við eigum að anda. Jafnvel þótt öndun komi af sjálfu sér, eru lungnaheilbrigði og loftgæði svo mikilvæg að vert er að hafa þau alltaf í huga! SPAKMÆLI „Árangur er ekki lokatakmark. Mistök eru ekki lífshættuleg. Hugrekkið til að halda áfram er það sem skiptir máli.“ – Winston Churchill Öndun - nokkur góð ráð Eftir Andrjes Guðmundsson ❦

x

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga
https://timarit.is/publication/1564

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.