Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 29

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 29
29 Ársskýrsla Vísindasjóðs 2022 Tilkynning frá Félagi íslenskra lungnalækna í tengslum við notkun á rafrettum: Aðalfundur Félags íslenskra lungnalækna vill vekja athygli á alvarlegum lungnasjúkdómum sem hafa greinst nýlega hjá notendum rafrettna.  Í ljósi þessara upplýsinga leggur félagið til að sala á rafrettum  verði stöðvuð þar til að nánari upplýsingar liggja fyrir um skaðsemi  þeirra. ❦ Starf Vísindasjóðs Lungnasamtakanna árið 2022 Vísindasjóður Lungnasamtakanna var endurreistur á haustmánuðum 2022. Markmið sjóðsins og skipulagsskrá sjóðsins voru endurskoðuð. Megintilgangur sjóðsins er samkvæmt skipulagsskrá að styrkja með fjárframlögum rannsóknir á orsökum lungnasjúkdóma, forvörnum, meðferð og lífsgæðum sjúklinga. Lungnasamtökin eru aðalstyrktaraðilar enn sem komið er, en unnið er að því að afla fleiri styrktaraðila. Stjórnin fundaði tvisvar sinnum í október og nóvember. Á milli funda voru tölvupóstsamskipti. Meginvinnan lá í að ákvarða úthlutunarreglur, eyðublað fyrir styrkumsóknir, vefsvæði og utanumhald á umsóknum, ásamt því að útbúa auglýsingu og ákvarða hvernig og hvar styrkumsóknir verða auglýstar. Einnig var útbúinn listi yfir tölvupóstföng aðila sem starfa í heilbrigðisþjónustu lungnaveiks fólks og þeirra sem leiðbeina og stýra rannsóknum á sviðinu svo auglýsa megi sjóðinn sem víðast. Stjórn sjóðsins er skipuð til þriggja ára í senn. Í stjórn sitja: Helga Jónsdóttir, formaður Ólafur Baldursson Þorbjörg Sóley Ingadóttir Jónína Sigurgeirsdóttir, Ingibjörg Bjarnadóttir Birna Aubertsdóttir Andrjes Guðmundsson Reykjavík 26. maí 2023 Helga Jónsdóttir

x

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga
https://timarit.is/publication/1564

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.