Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 30

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga - des. 2023, Blaðsíða 30
30 SNYRTA SIG Temprun: Sittu við að þvo þér í framan, bursta tennur og þurrka þér um hárið. Hvíldu þig eftir hverja athöfn. Þerraðu þig í staðin fyrir að nudda með þvottastykki. Skipulag: Taktu fram allt sem þú þarft að nota áður en þú byrjar. Stilltu spegil upp í andlitshæð þegar þú situr. Fljótandi sápa freyðir betur en sápustykki. Forgangsröðun: Prófaðu að nota þurrsjampó. Notaðu rafmagnstæki eins og tannbursta, rakvél. FARA Í STURTU/BAÐ Temprun: Notaðu sturtustól/baðbretti þegar þú þværð þér ef þú átt þess kost. Gefðu þér góðan tíma og taktu pásu. Notaðu baðslopp til að þurrka þér í stað þess að nota handklæði. Hvíldu þig áður en þú byrjar að klæða þig. Skipulag: Forðastu of heita sturtu ef þú finnur fyrir andnauð vegna gufunar. Hafðu góða loftræstingu og láttu e.t.v. glugga, eða dyr vera opnar. Með því að nota þvottabursta/svamp með löngu skafti takmarkar þú stórar handahreyfingar við að þvo fætur og bak. Til að forðast óþarfa orkunotkun við að halda jafnvægi er gott að hafa stama mottu á gólfinu og setja upp handföng á vegginn bæði fyrir innan og utan sturtu/ baðkar. Forgangsröðun: Er bað athöfn sem þú nýtur og ert tilbúin að eyða mikilli orku í? Er nauðsynlegt að fara í bað á hverjum degi? Getur þú farið í bað/sturtu á þeim tíma dagsins sem þér líður sem best?Getur þú þvegið þér við vaskinn þegar orkan er lítil? KLÆÐNAÐUR Temprun: Sittu við að klæða þig á rúmstokknum, í góðum stól eða á salerninu. Klæddu þig fyrst í að neðan meðan þú hefur næga orku. Hvíldu þig eftir hverja athöfn. Skipulag: Vertu búin/n að finna til fötin kvöldið áður. Veldu fatnað sem þægilegt er að klæða sig í, fellur laust að og er með festingar að framanverðu. Veldu skó m.t.t. að þeir séu léttir og þægilegt að fara í þá. Farðu í skyrtu og peysu þannig að þú ferð fyrst í ermar og smeygir flíkinni síðan yfir höfuðið. Gott er að sitja við að klæða sig í sokka og skó. Lyftu fætinum upp á hné til að fá hann nær eða settu hann upp á lágan koll. Sokkaífæra, langt skóhorn og teygjureimar í skó geta auðveldað þér verkið. Forgangsröðun: Getur þú skipulagt skúffur og hillur þannig að auðvelt sé að nálgast hlutina án þess að þú þurfir að beygja þig eða teygja? Getur þú haft það sem þú notar oftast aðgengilegt t.d. sokka og nærföt? ELDA Temprun: Dreifðu undirbúningnum yfir daginn. Hægt er að afhýða og skera grænmeti um morguninn sem á að elda um kvöldið. Sittu við að undirbúa mat, eða þegar þú bíður eftir að hræra. Taktu pásu á meðan þú ert að elda og eftir. Orkusparandi vinnuaðferðir og leiðir Eftir Ingibjörgu Bjarnadóttur og Erlu Alfreðsdóttur, iðjuþjálfa á Lungnasviði Reykjalundar ❦

x

Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Samtaka lungnasjúklinga
https://timarit.is/publication/1564

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.